Fallegur gistivalkostur í Desenzano
Hótelið er staðsett alveg við vatnið í fallega bænum Desenzano del Garda en þar má finna verslanir, veitingastaði og bari. Stuttur gangur á ströndina, miðbæinn og höfnina. Einnig er stuttur akstur í alla helstu þjónustu og afþreyingu.
Á þaki hótelsins er nuddpottur, sauna og lítil sólbaðsaðstaða með sólbekkjum. Þaðan er mjög fallegt útsýni út á vatnið. Morgunverðarsalurinn er á efstu hæð hótelsins og hægt er að sitja bæði inni og úti me einnig fallegu útsýni. Barinn er staðsettur á neðstu hæð hótelsins.
Herbergin eru innréttuð í nútímalegum og einföldum stíl og búin öllum helstu þægindum eins og loftkælingu, öryggishólfi, minibar, sjónvarpi, síma og inná baðherbergi má finna hárþurrku.
Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.
Fallegt og rólegt hótel nálægt strönd og miðbæ!