7 nætur við Gardavatnið og 2 nætur í Verona
Hér bjóðum við uppá samsetta ferð þar sem dvalið er við Gardavatnið í 7 nætur og 2 nætur á 4 stjörnu hóteli í borginni Verona. Um 10 dögum fyrir brottför kemur í ljós á hvaða hóteli verður dvalið á í Verona.
Hotel Bisesti er staðsett í rólegu og vinalegu umhverfi en þó er aðeins um 150 m frá miðbæ Garda en þar má finna verslanir, veitingastaði og bari. Stuttur gangur niður á strönd og einnig er stuttur akstur er í alla helstu þjónustu og afþreyingu.
Á hótelinu er sundlaug og sólbaðsaðstaða með sólbekkjum og sólhlífum. Lítil líkamsrækt og heilsulind með innilaug er á hótelinu. Hægt er að fá nudd og snyrtimeðferðir gegn gjaldi. Veitingastaður og bar eru á hótelinu og hægt er að sitja á verönd hótelsins. Einnig er hér hjólageymsla og hjólaleiga.
Herbergin eru innréttuð í bæði nútímalegum og klassískum stíl og búin öllum helstu þægindum eins og loftkælingu, öryggishólfi, minibar, sjónvarpi, síma og inni á baðherbergi má finna hárþurrku.
Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.
Fallegt og vinalegt hótel nálægt miðbæ!