Hotel Betulla
Hótellýsing

Hotel Betulla er notalegt 3 stjörnu hótel sem er vel staðsett í skíðabænum Madonna di Campiglio. Frá hótelinu er u.þ.b. 15 mínútna ganga í miðbæinn.

Gestamóttakan er opin frá kl 8:00 til miðnættis. Á hótelinu er veitingastaður og bar. Innifalið er hálf fæði, þ.e.a.s. morgunverður og kvöldverður. Einnig er skíðaleiga á hótelinu og fá gestir hótelsins aflsátt af skíðaskóla á svæðinu.

Herbergin eru einföld og snyrtileg með sjónvarpi, síma, öryggishólfi. Á baðherbergi er hárþurrka, stækkunarspegill og baðsloppar. 

Nálægar skíðalyftur:

  • Pinzolo – Campiglio Express – 300m
  • Spinale Express – 950m
  • 5 Laghi Express – 1km

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar. 

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.