Hotel Bellavista Pinzolo
Hótellýsing

Hotel Bellavista er notalegt hótel sem er staðsett í fjallaþorpinu Giustino við Pinzolo. Frá hótelinu er u.þ.b. 800 m ganga í miðbæ Pinzolo. 

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn. Á hótelinu er veitingastaður, bar, afþreyingarherbergi fyrir börn og barnaklúbbur. Börn geta fengið lánaðar snjóþotur og sleða á hótelinu. Engin heilsulind er á hótelinu en gestum er boðinn afsláttur hjá heilsulind í nágrenninu. Innifalið er hálf fæði, þ.e.a.s. morgunverður og kvöldverður.

Herbergin eru einföld og snyrtileg með sjónvarpi, síma, öryggishólfi og hárþurrku á baðherbergi. 

Hótelið er staðsett u.þ.b. 1,3 km frá Prà Rodont gondola kláfnum og með honum er hægt að komast til Madonna i Campiglio á um 16 mínútum. Hótelið bíður uppá fría skutlþjónustu að kláfnum á ákveðnum tímum. Skíðarúta stoppar einnig rétt við hótelið og áætlunarrútur sem ganga á milli Pinzolo, Madonna di Campiglio og Trento stoppa í 500 m fjarlægð. 

Nálægar skíðalyftur:
- Pinzolo-Prà Rodont gondola kláfurinn - 1,3 km

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.