Hotel Alberi del Paradiso
Hótellýsing

Hotel ALberi del Paradiso er fallegt 4 stjörnu hótel staðsett um 800 metra frá mibænum í Cafalú. Falleg staðsetning og glæsilegur garður.   Einkaströnd fyrir hótelgesti.  Á hótelinu er veitingahús þar sem boðið er uppá morgun.- hádegis- og kvöldverð.
Á hótelinu er heilsurækt og snyrtistofa og aðgangur að likamsræktarsal.  Herbergin eru rúmgóð og fallega innréttuð í ljósum stíl.  Öll með sjónvarpi, te- og kaffivél, öryggishólfi og minibar.  Hárþurrka á baðherbergjum.

Virkilega fallegt hótel og glæsilegur garður.

 

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Gjaldið er yfirleitt í kringum 3-4 evrur  á mann á dag. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.