Hotel St. Raphael er staðsett í hjarta Madonna di Campiglio. Hótelið er staðsett við endann á hinni frægu 3-Tre brekku svo hægt er að renna sér beint að hóteldyrunum eftir góðan dag í fjallinu. 50 metra fjarlægð er frá Pradalago skíðalyftunni.
Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn. Á hótelinu er veitingastaður og bar, boðið upp á morgunverðarhlaðborð, bæði heitt og kalt og 5 rétta kvöldverð.
Herbergin eru einföld, en þægileg og notaleg með sjónvarpi, skrifborði, síma, mini-bar og öryggishólfi. Á baðherbergi er hárþurrka.
Á Hótelinu er heilsulind með innisundlaug og gufu. Þar sem hægt er að slaka á eftir góðan dag í brekkunum. Hægt er að panta líkamsmeðferðir gegn gjaldi í heilsulindinni.
Nálægar skíðalyftur:
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.