Hotel San Zeno
Hótellýsing

Hotel San Zeno er staðsett á gróðursælu svæði í hlíðunum Monte Baldo í bænum San Zeno di Montagna. Bærinn stendur í ca 650 metra hæð frá sjávarmáli og þar er frábært loftslag, aldrei og rakt og aldrei of þurrt. 

Á hótelinu er morgunverðarsalur, einn veitingastaður og snarlbar í garðinum þar sem hægt er að njóta á sólbekkjum og í sundlaug hótelsins. Billiard borð er á hótelinu.

Herbergin eru innréttuð á klassískan máta, öll með svölum og útsýni yfir Gardavatnið. 
Í herbergjunum er sjónvarp, öryggishólf, sími, skrifborð og á baðherbergi eru sundlaugarhandklæði og hárþurrka.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.