Grand Plaza Hotel
Hótellýsing

Grand Hotel Plaza & Congress Center er gott hótel staðsett miðsvæðis í Ljubljana. 

Móttakan er opin allan sólarhringinn. Hótelið er er nútímalegt með 354 herbergjum, þar eru tveir veitingastaðir, bar, 8 ráðstefnusalir og líkamsræktaraðstaða.  

Herbergin eru nútímaleg og snyrtileg með stórum gluggum, loftkælingu, sjónvarpi, minibar, síma, öryggishólfi og hárþurrku á baðherbergi. Auk þess fá gestir baðslopp og inniskó. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.