Grand Hotel Union er gott 4 stjörnu hótel frá 1905 og stendur við hlið uHotel hótelsins í miðbæ Ljubljana. Hótelin er vel staðsett og eru einungis 180 metrar í gamla bæ Ljubljana og 500 metrar í dómkirkju Ljubljana. Hótelin deila ýmissi aðstöðu, en saman státa þessi tvö hótel af stærstu ráðstefnumiðstöðinni í Ljubljana, þremur veitingastöðum, og einnig deila þau heilsulind með líkamsræktaraðstöðu, sundlaug, gufubaði og flottu útsýni yfir borgina.
Grand Hotel Union var byggt 1905 og er hótelbyggingin mjög falleg.
Móttakan er opin allan sólarhringinn. Á hótelinu eru 111 herbergi, sem eru rúmgóð og smekklega innréttuð. Á herbergjunum eru sjónvarp, sími, öryggishólf, hárþurrka á baðherbergi, inniskór og baðsloppar. Ekki er ráðlegt að bóka saman 3 fullorðna í herbergi, þar sem auka rúmið hæfir frekar börnum yngri en 12 ára.
Gestir þurfa að bóka afnot af heilsulindinni í móttökunni og geta notað aðstöðuna án endurgjalds í allt að tvær klukkustundir.
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.