7 nætur við Gardavatnið og 2 nætur í Verona
Hér bjóðum við uppá samsetta ferð þar sem dvalið er við Gardavatnið í 7 nætur og 2 nætur á 4 stjörnu hóteli í borginni Verona. Um 10 dögum fyrir brottför kemur í ljós á hvaða hóteli verður dvalið á í Verona.
Grand Hotel Riva er fallegur gistivalkostur í bænum Riva del Garda, sem er norðan megin við Gardavatnið og næststærsti bærinn við vatnið. Hótel er mjög vel staðsett í miðbæ Riva del Garda, alveg við torgið og því stutt í alla þjónustu.
Á hótelinu er þaksundlaug með stórkostlegu útsýni yfir vatnið. Hér er einnig nuddpottur, sauna og hvíldarherbergi. Á hótelinu er veitingastaður með fallegu útsýni yfir vatnið, pizzastaður og bar. Morgunverður er innifalinn með gistingunni við Gardavatnið og í Verona.
Herbergin eru innréttuð í þægilegum stíl með sjónvarpi, öryggishólfi, minibar, síma og á baðherbergi má finna hárþurrku. Ath. það eru ekki svalir á öllum herbergjum.
Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.
Sjarmerandi hótel og góð staðsetning!