Garni Hotel Cristiania er gott hótel staðsett við efra torgið í Madonna di Campiglio, u.þ.b. 200 m frá miðbænum, beint á móti Pradalago skíðakláfnum.
Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn. Á hótelinu er veitingastaður, bar, skíðageymsla og heilsulind (gegn gjaldi). Hótelið býður eingöngu upp á morgunverð og því getur verið gott að bóka borð á veitingastöðum ef það á að fara út að borða á kvöldin.
Herbergin eru smekklega innréttuð í Alpastíl. Á öllum herbergjum er sími, sími, sjónvarp, öryggishólf og hárþurrka á baðherbergi.
- Standard herbergin er án svala og eru “old style” skv. hótelinu þar sem innréttingar hafa ekki verið endurnýjaðar.
- Panoramic herbergin eru mð svölum og nýtýskulegri innréttingum en standard herbergin.
- Panaromic svíturnar eru eins og panoramic herbergin, en stærri.
Nálægar skíðalyftur:
- Pradalago Express-skíðalyftan – 100 m
- Miramonti-skíðalyftan – 200 m
- 5 Laghi Express-skíðalyftan – 350 m
- Spinale Express-skíðalyftan – 600 m
- Fortini Express – 750 m
- Groste‘ 1 Express-skíðalyftan – 850 m
- Nube d‘Oro – 1,4 km
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.