Garni Al Nardis er lítið 12 herbergja hótel staðsett í þorpinu Carisolo við Pinzolo. Hótelið er staðsett á móti gönguskíðabrekkunni í Carsolo. Frá hótelinu er 0,8 km eða u.þ.b. 10 mínútna ganga inn í miðbæ Pinzolo.
Á hótelinu er morgunverðarsalur, bar og skíðageymsla. Gestir geta bókað tíma í heilsulindinni á Hotel Orso Grigio (10 m frá Garni Al Nardis). Í heilsulindinni er sauna, gufubað og heitur pottur.
Herbergin eru einföld í Alpastíl með svölum. Á öllum herbergjum er sími, sjónvarp, öryggishólf og hárþurrka á baðherbergi.
Nálægar skíðalyftur:
- Pinzolo-Prà Rodont gondola – 800 m
- Tulot – 1,6 km
- Doss del Sabion – 2,1 km
Í nágrenninu:
- Madonna di Campiglio – 13 km
Um 200 m frá hótelinu er gott 8 km gönguskíðasvæði.
Hægt er að taka skíðarútuna að lyftunum. Nánari upplýsingar um rútuferðir fást á hótelinu. Vikukort í skíðarútuna er um 10€ á mann.
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.