City Hotel Ljubljana er gott og vel staðsett hótel í miðborg Ljubljana. Hótelið á sér langa sögu í borginni og býður persónulega þjónustu. Hótelið er í göngufjarlægð frá helstu kennileitum.
Á hótelinu er veitingastaður, bar og líkamsræktaraðstaða.
Á hótelinu eru 207 nútímalega innréttuð herbergi. Þau eru smekkleg með sjónvarpi, síma, öryggishólfi, loftkælingu og hárþurrku á baðherbergi.
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.