Best Western Hotel Slon
Hótellýsing

Best Western Hotel Slon er gott og vel staðsett hótel í hjarta miðborgar Ljubljana, og býður upp á fjölbreytta þjónustu. Hótelið er staðsett í göngufæri við marga áhugaverða staði.   

Móttakan er opin allan sólarhringinn. Á hótelinu eru 168 herbergi, veitingastaður, bar, líkamsræktaraðstaða, sauna og gufubað, 

ATH. framkvæmdir eru í gangi á hótelinu!
Veitingastaður hótelsins er lokaður og er eingöngu tekið við fyrirfram bókunum fyrir hópa. En hægt er að kaupa veitingar á barnum.

Herbergin eru snyrtileg með loftkælingu, sjónvarpi, minibar, síma, öryggishólfi og hárþurrku á baðherbergi. Auk þess fá gestir baðslopp og inniskó. 
- Economy herbergi eru 16 m² að stærð, og seld sem einbýli 
- Comfort herbergi eru 25 m² að stærð, flest eru með hjónarúmum en einhver eru með tveimur rúmum. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.