Nútímalegt hótel með heilsulind
Aqualux Hotel & Spa er nútímalegt hótel í útjaðri Bardolino. Um 10 mínútna gangur er niður að höfninni.
Hótelið er nútímalega innréttað og er aðstaðan á hótelinu hönnuð með vellíðan gesta að leiðarljósi. Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, bar, líkamsræktaraðstaða og heilsulind. Hér er hægt að velja um gistingu með morgunverði eða hálfu fæði (þ.e.a.s. morgunverði og kvöldverði).
Hótelgarðurinn er fallega hannaður með trjám og blómum í kringum sundlaugarnar. Þar er 250 fermetra sundlaug sem er samtengd einni innisundlauginni, saltvatnslaug, nuddpottur og barnasundlaug. Í kringum sundlaugarnar eru sólbekkir og sólhlífar. Milli kl. 18:00-20:00 er sundlaugasvæðið eingöngu opið fullorðnum.
Aqua herbergin eru rúmgóð og hlýleg herbergi með útsýni yfir hótelgarðinn. Öll herbergin eru hljóðeinangruð með loftkælingu og eru flest með sérsvölum. Á öllum herbergjum eru sjónvarpi, minibar og öryggishólf. Baðsloppur og inniskór fylgja öllum herbergjum.
Fjölskyldusvíta er með tvíbreiðan svefnsófa í stofu þar sem 1-2 geta gist.
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.