Alicante Golf er gott 4 stjörnu hótel staðsett skammt frá miðborg Alicante og 10 mínútum frá bænum San Juan. Stutt er í verslun og á ströndina og nokkur skref á golfvöllinn.
Golfvöllurinn inniheldur sex par 3 holur, sex par 4 holur og sex par 5 holur, sem þýðir að þú munt aldrei spila sömu holu tvisvar í röð með sama par. Þetta gerir hringinn fjölbreyttari og skemmtilegri fyrir vikið. Völlurinn er einstaklega þægilegur bæði í göngu og á golfbíl.
Nokkur vötn eru á vellinum sem koma í leik á alls ellefu brautum en sérstaklega á síðustu þremur holum vallarins sem gerir lokakaflann að mikilli áskorun fyrir kylfinga af öllum toga. 18. holan er einstaklega skemmtileg og falleg lokahola þar sem gestir Hotel Alicante Golf geta fylgst með síðustu höggum kylfinga frá svölum hótelsins. Mikið er lagt upp úr því að Alicante Golf skarti sínu fegursta allan ársins hring, og því lagt mikið upp úr viðhaldi á golfvellinum.