Alemaris Resort er fallegur strandstaður á Makarska svæðinu sem býður upp á beinan aðgang að ströndinni og gróskumikinn garð þar sem gestir geta notið rólegs umhverfis við Adríahafið. Staðsetningin er tilvalin fyrir þá sem vilja sameina afslöppun við ströndina og nálægð við náttúru og afþreyingu. Skammt frá hótelinu (2.5 km) er Baska Voda, lítill fallegur bær með litlum mjóum götum, líflegri strandgötu og með gott úrval af veitinga- og kaffihúsum. Þrátt fyrir að vera vinsæll ferðamannastaður hefur Baška Voda haldið í sjarma lítils sjávarþorps, með mjóum götum og rólegri stemningu á kvöldin.
Herbergin á hótelinu eru þægileg og nútímaleg, búin loftkælingu, svölum, einkabaðherbergi og góðum þægindum til að gera dvölina sem notalegasta. Í boði eru “Standard” og “Superior” herbergi. Superior herbergin taka 2 fullorðna og 2 börn en þessi herbergi eru stærri og með svefnsófa fyrir börnin (160x200 cm). Öll herbergi eru með sjónvarpi, minibar, öryggishólfi og ókeypis Wi-Fi. Öll herbergi eru loftkæld.
Á staðnum er veitingastaður sem býður upp á fjölbreyttan kvöldverðarmatseðil, þar á meðal grænmetis- og veganrétti. Einnig er bar og kaffihús þar sem gestir geta fengið sér drykki og léttar veitingar yfir daginn. Niður við strönd er veitingastaður á vegum hótelsins en aðeins er 50 metrar frá hótelinu niður að ströndinni. Ókeypis Wi-Fi er í boði á öllu svæði hótelsins.
Á hótelinu er einnig skemmtidagskrá, leikherbergi og leiksvæði fyrir yngstu börnin. Þá er þar að finna tennis- paddle völl. Barnaklúbbur er starfandi á þessu hóteli.
Ath: Innifalið er hálft fæði, morgun- og kvöldverður ásamt drykkjum með kvöldverði (vatn, léttvín, bjór og djús).
Ströndin Baško Polje er aðeins um 4 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu og hinn fallegi náttúruperlur, Bláa vatnið, er í um 28 km fjarlægð. Alemaris Resort er því frábær kostur fyrir þá sem vilja njóta sólar, sjávar og náttúru í þægilegu og afslappuðu umhverfi.