Aguamarina suites er hluti af MS hótelkeðjunni sem er vel þekkt á spáni. Hótelið er staðsett á Bajondillo svæðinu sem er mjög líflegt og auðugt af börum og veitingastöðum. Í einungis 500 metra fjarlægð má finna verslunargötu, San Miguel Street. Um fimm mínútna gangur er niður að strönd.
Hér er móttakan opin allan sólarhringinn og hægt að leigja m.a. reiðhjól, mótorhjól og bílaleigubíl.
Svíturnar er allar rúmgóðar og nútímalega innréttaðar. Athugið, það fylgja ekki svalir öllum svítum. Í þeim öllum má finna loftkælingu, gervihnattasjónvarp, öryggishólf (gegn gjaldi), setusvæði og baðherbergi með sturtur eða baðkari ásamt hárþurrku. Hægt er að leigja barnarúm gegn 9 evru gjaldi per dag. Ef bókað er svíta með sundlaugarsýn fylgja svalir eða verönd.
Margvíslega þjónustu má finna á hótelinu, m.a. þvottaþjónustu og þurrhreinsun, bæði gegn gjaldi. Einnig er líkamsræktaraðstaða. Hótelið hefur auk þess Spa með upphitaðri innilaug ásamt sauna og hægt að bóka ýmsar nuddmeðferðir gegn gjaldi.
Glæsilegur hlaðborðsveitingastaður er á hótelinu þar sem hægt er að fá úrval rétta á morgnana og kvöldin. Þess utan er veitingastaður og snakkbar þar sem hægt er að seðja hungrið í hádeginu og yfir daginn. Á hótelinu má einnig finna flottan bar með úrvali drykkja.
Góð sundlaug er í garðinum ásamt nuddpotti. Fín aðstaða er til sólbaða með góðum bekkjum og sólhlífum.
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Rólegt og huggulegt hótel!