Fara í aðalefni
Persónuverndarstefna

Þínar persónuupplýsingar

Heimsferðir ehf. („Heimsferðir", „við", „okkar") virðir einkalíf viðskiptavina sinna og gesta á heimsíðu. Markmið okkar er skýrt — með þessari stefnu óskum við eftir, á gagnsæjan hátt, að lýsa fyrir þér hvernig við söfnum saman, notum, birtum og vistum upplýsingar þannig að þú sért viss um að persónuupplýsingar þínar séu geymdar á öruggan hátt.

Heimsferðir annast alla meðferð persónuupplýsinga í samræmi við persónuverndarlög og nýja persónuverndarlöggjöf ESB (GDPR).


Ábyrgð gagna

Heimsferðir ber ábyrgð á meðhöndlun persónuupplýsinga á þessari og öðrum heimasíðum sem eru á ábyrgð fyrirtækisins. Fyrirtækið safnar ýmist sem ábyrgðaraðili eða vinnsluaðili.

Hafa samband


Öflun persónuupplýsinga

Hvað eru persónuupplýsingar?

Persónuupplýsingar eru sérhverjar upplýsingar sem beint eða óbeint má rekja til tiltekins einstaklings, t.d. nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer. Þetta gildir einnig um miða-/bókunarnúmer, dulkóðuð gögn og rafræn einkenni eins og IP-tölur ef hægt er að rekja þær til einstaklinga.

✈️ Upplýsingar tengdar bókun og ferðalagi

Þegar þú bókar ferð á heimsferdir.is, hjá samstarfsaðila eða á skrifstofu okkar söfnum við:

  • Nafn, fæðingardagur, aldur og kyn allra farþega
  • Heimilisfang og tengiliðaupplýsingar þess sem bókar
  • Greiðsluupplýsingar
  • Upplýsingar um forráðamann ef börn ferðast

Þegar ferð lýkur söfnum við einnig bókunarnúmeri, áfangastað, ferðalengd og aðrar nýttar þjónustur.

Upplýsingar í gegnum persónulega þjónustu

Þegar þú hefur samband við þjónustuver okkar söfnum við þeim upplýsingum sem við þurfum til að svara — nafn, bókunarnúmer, netfang eða símanúmer eftir aðstæðum. Þú getur einnig valið að gefa okkur upplýsingar um ofnæmi, sjúkdómsástand eða annað viðeigandi.

Upplýsingar í gegnum „Mínar síður"

Ef þú skráir þig á heimsferdir.is geymum við netfangið þitt og notendanafn. Þú getur valið að bæta við nafni, heimilisfangi og tengiliðaupplýsingum.

Fréttabréfsáskrift

Við söfnum nafni og netfangi þeirra sem skrá sig í áskrift. Ef þú gefur upp póstnúmer geymum við það einnig.

Stafræn þjónusta

Þegar þú notar heimasíður okkar söfnum við gögnum um notkun þína, m.a. IP-númer og leitarmynstur. Ef þú ert innskráð/ur geta þessi gögn tengst öðrum upplýsingum sem við höfum um þig.

Upplýsingar frá þriðja aðila

Við bókun getur annar aðili gefið upp persónuupplýsingar ferðafélaga. Við gerum ráð fyrir að viðkomandi hafi samþykki þeirra. Við uppfærum einnig gögn úr opinberum skrám, t.d. heimilisfang og kennitölu.


⚙️ Meðhöndlun og varðveisla persónuupplýsinga

Lagalegur grundvöllur

Heimsferðir meðhöndlar persónuupplýsingar þínar í samræmi við lög. Aðallega vinnum við upplýsingar til þess að uppfylla samning við þig (t.d. ferðakjör). Við gætum einnig unnið úr upplýsingum vegna lögmætra hagsmuna, t.d. tölfræðilegrar greiningar og markaðssetningar, ef það brýtur ekki í bága við hagsmuni þína.

Hvernig við notum upplýsingarnar

  • Gefa út miða og ferðagögn, gera hótelbókanir og greiða fyrir pantaða þjónustu
  • Bókhald, uppgjör, endurskoðun og staðfesting greiðslukorta
  • Þjónusta við viðskiptavini — svara spurningum og afgreiða kvartanir
  • Senda staðfestingar, mikilvægar ferðaupplýsingar og minningar
  • Senda spurningalista að ferð lokinni til að hjálpa okkur að bæta þjónustuna
  • Senda SMS-skilaboð fyrir og á meðan á ferð stendur (veður, flug, viðburðir)
  • Markaðssetning og aðlögun fréttabréfs (með samþykki)
  • Þróun á vörum og þjónustu
  • Uppfylla lagalegar skyldur

Geymslutími

Tegund gagna Geymslutími
Almenn persónuupplýsingar og ferðasaga 7 ár
Með sérstaklegu samþykki 10 ár
Ef kvörtun er lögð fram innan 2 ára frá síðustu ferð 10 ár
„Mínar síður" — meðan notendaaðgangur er virkur Þar til aðgangi er lokað
Fréttabréfsáskrift Þar til afskráning á sér stað

Öryggi

Við metum stöðugt áhættu í meðhöndlun persónuupplýsinga og gerum nauðsynlegar varúðarráðstafanir. Við þjálfum starfsfólk reglulega og höfum sérstakan fulltrúa (CDPO) sem ber ábyrgð á gagnavernd. Spurningar um GDPR eða persónuverndarlög má senda á personuvernd@heimsferdir.is.


Dreifing persónuupplýsinga

Microsoft

Við notumst við Microsoft Office og kerfisþjónustu fyrir innri vinnu. Gögn eru geymd í skýja-þjónustu Microsoft innan ESB. Í stórum upplýsingatækniatiburðum getur Microsoft flutt gögn tímabundið utan ESB/EES eingöngu til verndar þeirra.

Upplýsingatæknikerfi og þjónustuaðilar

Sum kerfi okkar eru eingöngu aðgengileg starfsfólki okkar. Önnur eru skýjalausnir þar sem þjónustuaðilar vinna gögn á okkar vegum og samkvæmt okkar leiðbeiningum.

Birgjar í ferðatengdri þjónustu

Til að uppfylla bókun þína þurfum við að deila persónuupplýsingum með eftirfarandi:

  • ✈️ Flugfélög (Neos Air, Norwegian o.fl.) — nafn, fæðingardagur, aldur, kyn, heimilisfang og tengiliðaupplýsingar. Flutningur fer í gegnum Amadeus, Paxport eða beint sem farþegalisti.
  • Hótel á áfangastöðum, bæði innan og utan ESB/EES
  • Þjónustuaðilar á flugvöllum (innritun, farangur o.fl.)
  • Skattfrjáls varningur — þjónustuaðili flugfélagsins fær nauðsynlegar upplýsingar
  • Skoðunarferðir og aðrar ferðaþjónustur

Dreifing utan ESB/EES

Þar sem við skipuleggjum ferðir um allan heim eru sumir samstarfsaðilar utan ESB/EES. Heimsferðir ber alltaf skyldu til að tryggja öryggi persónuupplýsinga þinna óháð því hvert þær eru sendar.


✅ Réttindi þín

Meðhöndlun persónuupplýsinga sem er nauðsynleg til að standa við samning eða uppfylla lagalega skyldu er heimil án samþykkis. Önnur meðhöndlun krefst samþykkis þíns.

Þú átt eftirfarandi réttindi:

  • Aðgangur — Fá upplýsingar um hvaða gögn við höfum um þig
  • Leiðrétting — Biðja um leiðréttingu rangra upplýsinga
  • Eyðing — Biðja um eyðingu persónuupplýsinga
  • Takmörkun — T.d. banna notkun til beinnar auglýsingar
  • Afturköllun samþykkis — Hvenær sem er með því að hafa samband við okkur
Athugið: Þótt þú afturkallir samþykki geta persónuupplýsingar enn verið geymdar hjá okkur í öðrum lögmætum tilgangi, t.d. vegna bókhaldsskyldu.

Hvernig bið ég um gagnaafhendingu?

Beiðni verður að vera skrifleg með undirskrift og getur því ekki verið send í tölvupósti. Merktu bréfið „Beiðni um gagnaafhendingu" og sendu á: Heimsferðir, Skógarhlíð 18, 108 Reykjavík.

Þú getur notað eftirfarandi texta:

Gagnaafhending — til þess sem ber ábyrgð á persónuupplýsingum hjá Heimsferðum

Hér með sæki ég um að fá upplýsingar um gögn er mig varða í ykkar varðveislu skv. § 31 Persónuverndarlaga.

Staður og dagsetning: ___________________________
Undirskrift: ___________________________
Nafn (hástafir), kennitala og heimilisfang: ___________________________
Netfang / símanúmer: ___________________________


Vafrakökur

Á heimsferdir.is og öðrum vefsíðum okkar notum við vafrakökur til að undirbúa upplifun þína, safna upplýsingum fyrir markaðsherferðir og þróa heimasíðurnar. Upplýsingarnar eru að meginstefnu til geymdar sem nafnlæg gögn. Frekari upplýsingar eru í vafraköku-stefnu okkar.


⚠️ Ef þú óskar eftir að kvarta

Sérhver einstaklingur sem telur að Heimsferðir brjóti gegn Persónuverndarlögum eða öðrum lögum um friðhelgi einkalífs getur haft samband við Neytendastofu. Lestu meira á heimasíðu Neytendastofu.