Heimsferðir bjóða nú upp á borgarferðir til fallegu borgarinnar Lecce á Suður Ítalíu. Borgin er oft kölluð Flórens suðursins en hún er aðal borgin á Salentoskaganum í suðurhluta Puglia. Lecce er ein af elstu borgum Ítalíu og eitt best varðveitta leyndarmál Ítalíu hvað varðar fegurð og sögu. Hún er þekkt fyrir skrautlegar byggingar og minnisvarða í barokkstíl, þar má helst nefna Dómkirkjuna og basilíkuna Santa Croce ásamt fjölda barokk minnisvarða um alla borg. Dómkirkjan er staðsett á einu fallegasta torgi borgarinnar, Piazza del Duomo en þar má einnig sjá Episcopio klukkuturninn og Palazzo del Seminario.
Gamli bærinn í Lecce er þekktur fyrir mikla sögu og fallegar byggingar. Gaman er að rölta um þröngar götur en þar má finna fjöldann allan af ekta ítölskum veitingastöðum, pizzeríum, litlum börum og fallegum verslunum. Við mælum með því að ganga um Via Salvatore Trinchese götuna en þar sem má finna fjölmargar verslanir frá alþjóðlegum keðjum ásamt minjagripaverslunum frá svæðinu, en þær eru þekktar fyrir fallegar handgerðar pappafígurur. Í stuttri göngufjarlægð frá verslunargötunni eru fallegar byggingar á borð við Palazzo delle Poste og Apolloleikhúsið og skemmtilegan borgargarð í ítölskum stíl. Fyrir þá sem elska fallegan arkítektúr, líflegt en afslappað umhverfi, góðan mat og ítölsk vín þá er Lecce borgin.
Hér má finna áhugaverðar greinar eftir Ágústu fararstjóra:
- Lecce - Flórens suðursins
- Marglaga fornminjar í Lecce
- Gríska suðrið á Ítalíu
Hagnýtar upplýsingar - Lecce
Frá Keflavík: 17.-21.október
Fararstjórar: Verða kynntir síðar!
Ferð: Gönguferð um Lecce
Dagsetningar:
Föstudaginn 18. október kl. 10:00
Tími: Um 2-3 klst.
Lýsing:
Lecce er þekkt fyrir skrautlegar byggingar í barokkstíl og byggingarsögu sem á sér fáa líka. Í þessari þægilegu gönguferð um gamla bæinn fræðast farþegar um og bæinn, byggingasöguna og hvað gerir Lecce að Flórens suðursins. Ferðin verður sniðin að þörfum hópsins og við byrjum þar sem best hentar miðað við staðsetningu hótelsins sem fólk gistir á. Við munum skoða dómkirkjutorgið þar sem hin sérkennilega Dómkirkja stendur ásamt klukkuturninum, biskupahöllinni og prestaskólanum. Við komumst að því hver helsta verslunargatan er og kynnumst því sem er efst á baugi í matargerðinni í Lecce. Heimsókn í Santa Croce kirkjuna og Sant‘Oronzo torgið þar sem rómverska hringleikahúsið stendur eru ómissandi viðkomustaðir. Við mælum með þessari ferð fyrir þá sem vilja fræðast, ná áttum og kynnast borginni fyrir dvölina framundan.
Verð 5.500 kr. á mann
Innifalið í verði: Kirkjupassi (Dómkirkjan og grafhvelfingin, Santa Croce), heyrnartól og íslensk fararstjórn.
Ferð: Vínsmökkun og pörun með mat
Dagsetningar:
Föstudaginn 18. október kl. 16:30
Tími: Um 5 klst.
Lýsing:
Við tökumst á hendur ferð til að bragða afurðir vínviðarins sem vex hér í Salento sýslunni. Tiltölulega stutt rútuferð í víngerðina Schola Sarmenti þar sem við skoðum og fræðumst um vínframleiðsluna þeirra og skemmtilega innréttuð húsakynnin sem taka vel á móti okkur. Að lokum setjumst við að borðum og fáum kvöldverð með fjórum tegundum af vínum sem eru pöruð við þann mat sem við borðum. Skemmtileg síðdegisferð með fullt af fræðslu, gómsætum mat og eðalvínum sem okkur gefst færi á að kaupa líka.
Verð 12.800 kr. á mann
Innifalið í verði: Akstur, vínsmökkun, léttur kvöldverður og íslensk fararstjórn.
Ferð: Kynnisferð Otranto - NÝTT
Dagsetningar:
Laugardaginn 19. október kl. 14:00
Tími: Um 4 klst.
Lýsing:
Hálfsdagsferð suður fyrir Lecce þar sem við heimsækjum sjávarþorpið Otranto sem stendur á mikilvægum stað við Adríahafið. Staðsetning bæjarins hefur einmitt haft mikil áhrif á söguna, því höfnin hefur verið mikilvæg í gegnum aldirnar og allskonar innrásir og leiðangrar hafa farið hér í gegn. Frá Otranto er stutt yfir til Króatíu og Albaníu. Dómkirkjan í Otranto er einn af demöntum Puglia og verður hún heimsótt. Þar fáum við að sjá eitt stærsta mósaík gólf í heiminum og fræðumst um sérstæða sögu hennar. Við kynnumst gamla bænum og skemmtilegum verslunum sem þar eru. Otranto er einnig vinsæll strandstaður. Komið aftur til Lecce um kl. 13:30.
Verð 10.900 kr. á mann
Innifalið í verði: Akstur, aðgangur í dómkirkjuna, heyrnartól og íslensk fararstjórn
Ferð: Polignano a Mare - Alberobello
Dagsetningar:
Sunnudaginn 20. október kl. 08:30
Tími: Um 11 klst.
Lýsing:
Heilsdagsferð norður fyrir Lecce þar sem við heimsækjum tvo af markverðustu bæjunum á þeim slóðum og borðum svo dásamlega fjögurra rétta máltíð í Villa Maria. Brottför frá Lecce kl. 08:30. Við byrjum í Polignano a Mare en bærinn er þekktur fyrir háa kletta og „klettadýfingar“. Við skoðum gamla miðbæinn og komum auga á hvar einn sérkennilegasti veitingastaður í heimi er niður kominn. Polignano a Mare er líka heimabær Modugno sem söng Volare svo eftirminnilega í Eurovision um árið. Þá höldum við í hádegisverð á Villa Maria sem stendur á einstaklega fallegum stað í sveitinni og borðum fallega máltíð með viðeigandi víni. Þá er haldið til Alberobello með ævintýralegu „trulli“ byggingarnar sem eru hvítkölkuð steinhús með keilulaga húsþökum. Þessar byggingar eru allar á heimsminjaskrá UNESCO. Komið aftur til Lecce um kvöldið um 19:30. Athugið að töluvert mikil ganga er í þessari ferð.
Verð 21.700 kr. á mann
Innifalið í verði: Akstur, léttur hádegisverður og íslensk fararstjórn
Ferð: Brindisi, hádegisverður og akstur á flugvöll – á brottfarardegi - NÝTT
Dagsetningar:
Mánudagurinn 21. október kl. 09:00
Tími: Um 5-6 klst.
Lýsing:
Síðasta daginn er upplagt að nýta vel og skoða borgina Brindisi sem gefur Lecce lítið eftir. Brindisi var mikilvæg Rómverjum til forna og var borgin upphafsstaður fjölda krossferða. Eftir morgunverð og útritun af hóteli er ekið er til Brindisi þar sem gengið er um gamla bæinn og meðfram sjávarsíðunni. Í ferðinni má sjá fornu rómversku súlurnar sem mörkuðu enda Via Appia, sem var vegurinn sem tengdi Brindisi við Róm. Einnig ber við augu Virgilian-tröppurnar sem liggja að dómkirkjutorginu þar sem dómkirkja Jóhannesar skírara stendur og fleiri byggingar sem tengjast trúarsögunni. Að lokinni gönguferðinni verður frjáls tími áður en snæddur verður hádegisverður á sjávarrétta veitingastað. Síðan er haldið rakleiðis á flugvöllinn og flogið heim.
Verð 19.500 kr. á mann
Innifalið í verði: Akstur, hádegisverður, akstur á flugvöll, heyrnartól og íslensk fararstjórn
** Farþegar taka töskur sínar með í rútuna, þar sem ferðin endar út á flugvelli.
*** farþegar sem bóka þessa ferð þurfa ekki að bóka akstur út á flugvöll þar sem ferðin endar á flugvellinum***
Ath. Lágmarksþátttaka í ferð með íslenskumælandi fararstjóra er 20 manns, en bóka þarf kynnisferðir á Íslandi í síðasta lagi 15 dögum fyrir brottför. Hafa þarf í huga að uppselt getur verið í ferðina fyrir þann tíma.
Ath. Hægt er að bóka kynnisferðir þegar ferð er bókuð á netinu eða í gegnum síma 595-1000
Verð miðast við farþega í pakkaferðum á vegum Heimsferða!
Vinsamlegast athugið að verð og tímasetningar eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, Heimsferðir áskilja sér rétt að breyta slíku án fyrirvara. Athugið að nákvæmar tímasetningar liggja endanlega fyrir rétt fyrir brottför og er öllum farþegum tilkynnt um þær.
Áhugavert að skoða í Lecce!
Ýmislegt er hægt að gera í Lecce og hér að neðan má finna ýmsa afþreyingu.
Pizzica danskennsla | Klukkustundar kennsla í Pizzica, sem er þjóðdans Salento héraðs og er frægur um allan heim. Danskennslan fer fram í fornum garði í hjarta miðbæjar Lecce. Hægt er að fá nánari upplýsingar hér. |
Hjóla | Upplagt er að leigja hjól eða fara í skipulagða hjólaferð í Lecce. Ýmsar ferðir eru í boði og hér má finna dæmi um eina slíka. |
Götumatur í Lecce | Borðaðu og drekktu þig í gegnum Lecce í matreiðsluferð sem ætlað er að varpa ljósi á ríka matargerðarmenningu borgarinnar. Hér er dæmi um eina slíka ferð. |
Námskeið í pappírs mâché | Kennsla í pappírsmâché, fornri framleiðslutækni frá Lecce. Hægt er að fá nánari upplýsingar hér. |
Museo Faggiano | Safn sem sýnir 2000 ára gamla fornleifasögu sem fannst undir húsi í einkaeigu. Hægt er að fá nánari upplýsingar hér. |
Museo Ebraico | Gyðingasafnið í Lecce. Hægt er að fá nánari upplýsingar hér. |
*Vert er að taka fram að þessar ferðir eru ekki á vegum Heimsferða, heldur aðeins hugmyndir um áhugaverða staði. Heimsferðir bera ekki ábyrgð á miðakaupum.