
Þrír 18 holu vellir, þar af 36 holur hannaðar af meistara Severiano Ballesteros.
· 31. mars – 10. apríl 10 nætur – páskar uppselt
· 10. – 19. apríl 9 nætur uppselt
· 19. – 22. apríl 3 nætur uppselt
· 22. Apríl – 2. Maí 10 nætur uppselt
· 2. – 12. Maí 10 nætur
Verðskrá
Innifalið:
· Beint leiguflug til Jeres með Icelandair, aðeins 40 mín keyrsla frá flugvelli. Farþegar okkar geta verið komnir í golf rúmum klukkutíma eftir að þeir lenda.
· Flugvallarskattar
· Flutningar á golfsettum
· Rútur til og frá flugvelli
· Gisting með morgunverði og kvöldverði
· Ótakmarkað golf alla daga
· Golfkerrur og æfingaboltar
· Fararstjórn
·· Hér er einnig hægt að panta ,allt innifalið´ á hótelinu. Allur matur, snarl og innlendir drykkir að undanskildum ákveðnum víntegundum í dýrari kantinum (Ath! þeir fást þó á afslætti).
Novo SanctPetri golfsvæðið
Novo Sancti Petri golfsvæðið er í Andalúsíu á Spáni við strönd Atlantshafsins. Á ströndinni eru glæsilegir golfvellir við hæfi allra kylfinga, æfingasvæði og nýuppgert fjögurra stjörnu hótel með líkamsrækt. Novo Sancti Petri er draumur hvers kylfings því það samanstendur af snilldarlega hönnuðu golfsvæði með 54 holu keppnisvelli, stuttum æfingaholum og fullkomnu æfingasvæði, hóteli, líkamsrækt og strönd, allt á sama stað. Fyrir þá sem vilja prófa aðra golfvelli eru meira en 14 glæsilegir golfvellir í næsta nágrenni. Þeir sem vilja skoða meira en golfvelli hafa úr nægu að velja því aðeins er 30 mínútna akstur til borgarinnar Jerez og 15 mín. til hinnar sögufrægu borgar Cadiz og fleiri bæja þar sem frábært er að njóta mannlífsins og menningarinnar.
Golfvöllurinn:
Novo Sancti Petri golfsvæðið býður upp á mikla fjölbreytni. Um er að ræða 54 holu golfvöll sem skiptist í strandbrautir, hefðbundnar skógarbrautir, vatnabrautir og brautir sem bjóða upp á fallegt útsýni yfir Atlantshafið. 36 af 54 brautum eru hannaðar af snillingnum Severiano Ballesteros og er Novo Sancti Petri fyrsti völlurinn sem hann hannaði, síðan þá hefur hann hannað marga fræga velli.
Æfingasvæðið er mjög gott og er þar mikið pláss sem býður upp á bæði gras og mottur. Á æfingasvæðinu eru minni svæði fyrir löng og stutt vipp, sandgryfjuhögg og einnig eru þar góð púttsvæði. Stuttar æfingabrautir eru einnig á svæðinu. Klúbbhúsið er rúmgott og vinalegt og öll önnur aðstaða er til fyrirmyndar.
Kíktu nánar á Novo Sancti Petri golfsvæðið hér!
Hotel Iberostar Royal Andalus ****
Hótelið er við ströndina, nýlega uppgert 4 stjörnu hótel. Á hótelinu eru 413 herbergi á 3 hæðum. Fjölbreytt aðstaða og þjónusta er á hótelinu, s.s. stórar setustofur, hársnyrting, fundarherbergi, líkamsrækt, snarl-bar, kaffitería og veitingastaðir.
Á 60.000 fm. svæði eru tvær stórar sundlaugar, barnalaugar, aðstaða til slökunar og sólbaða. Við hótelið er glæsileg baðströnd og á hótelinu er hægt að leigja strandsólbekki. Einnig er þarna fjölbreytt tómstunda- og íþróttaaðstaða í boði, bæði á hótelinu og í nágrenninu.
Fyrir bókanir á Arcos Gardens, svítur eða annað, vinsamlegast hringið í Hörð í síma 618-4300 eða sendið vefpóst á sport@heimsferdir.is