
Magnaður völlur hannaður af Jack Niclaus, stórkostlegt útsýni
Magnaður völlur, stórfenglegt útsýni og fallhæð af teigum. Fyrsti völlur sem Jack Nicklaus hannaði í Evrópu
· 31. mars – 10. apríl 10 nætur – páskar uppselt
· 10. – 19. apríl 9 nætur uppselt
· 19. – 22. apríl 3 nætur uppselt
· 22. Apríl – 2. Maí 10 nætur uppselt
· 2. – 12. Maí 10 nætur
Verðskrá
Innifalið:
· Beint leiguflug til Jeres með Icelandair, aðeins 12 mín keyrsla frá flugvelli. Farþegar okkar geta verið komnir í golf innan klukkutíma eftir að þeir lenda.
· Flugvallarskattar
· Flutningar á golfsettum
· Rútur til og frá flugvelli
· Gisting með morgunverði og kvöldverði
· Ótakmarkað golf alla daga
· Golfkerrur og æfingaboltar
· Fararstjórn
· Hér er einnig hægt að panta ,allt innifalið´ á hótelinu. Allur matur, snarl og innlendir drykkir að undanskildum ákveðnum víntegundum í dýrari kantinum (Ath! þeir fást þó á afslætti).
Innifalið í verði í öllum verðum:
Beint leiguflug til Jerez með Icelandair, aðeins 12 mín akstur frá flugvelli. Farþegar okkar geta verið komnir í golf innan við klukkustund eftir lendingu.
Flugvallaskattar
Flutningur á golfsettum
Rútur til og frá flugvelli
Gisting með öllu inniföldu
Ótakmarkað golf alla daga með golfbíl
Æfingaboltar
Fararstjórn
Barcelo Montecastillo Resort*****
Glæsilegt hótel sem staðsett er við hinn einstaklega fallega bæ Jerez de la Frontera. Hér er umgjörðin einstaklega glæsileg og allur aðbúnaður og þjónusta fyrir hótelgesti eins og best verður á kosið. Við hótelið eru tvær sundlaugar, þrír veitingastaðir, barir, glæsileg heilsulind (spa), líkamsrækt o.fl.
Á hótelinu eru 208 rúmgóð og vel búin herbergi, m.a. með loftkælingu, minibar, öryggishólfi, gervihnattasjónvarpi, síma og baðherbergi með hárþurrku.
Hótelið stendur við stórglæsilegan 18 holu golfvöll sem hannaður var af Jack Nicklaus. Volvo Masters mótið var til dæmis haldið á þessum velli í fimm ár í röð (1997-2001). Auk þess eru við hótelið fótboltavellir, tennisvellir, og almenn aðstaða til íþróttaiðkunar og æfinga o.fl.