Fararstjórar
Golffararstjórar Heimsferða, Hörður Hinrik Arnarson, Magnús Birgisson, Ragnhildur Sigurðardóttir og Karl Ómar Karlsson búa yfir mikilli reynslu af fararstjórn golfferða og sameiginlega hafa þau þjónustað þúsundir ánægðra golffarþega á Spáni og Portúgal.
Magnús Birgisson
Fæðingardagur: 21. júlí 1959
Byrjaði í golfi: Á Hvaleyri 1967
Afrek/landsliðssæti: Unglingameistari 1974, 1975 og 1978. Unglingalandslið 1977-1978
Menntun: Húsasmiður (1980), Þroskaþjálfi (1991)
Golfkennarapróf frá sænska PGA (2000)
Golfkennsla: Frá 1991, golfskóli á Spáni frá 1997, aðalkennari GKG 1994-2001, aðalkennari golfklúbbsins Odds frá 2001
Hörður Hinrik Arnarson
Fæðingardagur: 9. apríl 1967
Byrjaði í golfi: Á Hvaleyri 1978
Afrek/landsliðssæti: Unglingalandslið 1985-1986
Menntun: Sagnfræði frá HÍ og St. Andrews University (1990-1993)
Golfkennarapróf frá sænska PGA (2001)
Golfkennsla: Frá 1991, golfskóli á Portúgal og Spáni frá 1998, aðalkennari golfklúbbsins Keilis frá 1998-2004 og 2006-2007
Liðstjóri unglingalandsliða frá 1992-1997, 2005-2006
Aðstoðarmaður landsliðsþjálfara 2002-2004
Ragnhildur Sigurðardóttir
Fæðingardagur: 21. júní 1970
Byrjaði í golfi: Í Grafarholti 1983
Afrek/landsliðssæti: Stúlknameistari 1984-1988, Íslandsmeistari í höggleik 1985, 1998, 2003, 2005, Íslandsmeistari í holukeppni 7 sinnum síðast árið 2005, Reykjavíkurmeistari 15 sinnum, stigameistari kvenna 9 sinnum síðast 2006
Landsliðsæti frá 1985-2002, topp 10 í kjöri íþróttamanns ársins 1998 og 2003, íþróttamaður Reykjavíkur 2005
Menntun: Íþrótta- og grunnskólakennari frá KHÍ (1994)
Golfkennarapróf frá PGA á Íslandi (vor 2008)
Golfkennsla: Umsjón með Golfskóla GR fyrir börn og unglinga 1986-1997, Golfkennsla/einkakennsla frá 2002, golfskóli á Spáni frá 2007.
Karl Ómar Karlsson
Fæðingardagur: 8. febrúar 1968
Byrjaði í golfi: Í Grafarholti 1978
Afrek/landsliðssæti: Unglingalandslið 1983-1985
Menntun: Íþróttakennarapróf frá ÍKÍ 1993, golfkennarapróf frá sænska PGA (2003)
Golfkennsla: Frá 1984 hjá GR, aðalkennari golfklúbba á Austurlandi frá 1993-1996, aðalkennari golfklúbba á Vesturlandi frá 1997-2000, aðalkennari Eiker GK og RE GK í Noregi frá 2000-2005, aðalkennari golfklúbbsins Leynis frá 2005,
Golfskóli á Spáni frá 2007.