Netklúbbur


Golfskólinn þinn - nýjungar í golfnámskeiðum

Golfskólinn þinnGolfskólinn þinn hefur verið leiðandi í golfkennslu Íslendinga erlendis frá árinu 1997. Kennarateymið er skipað Herði H. Arnarsyni (IPGA - SPGA), Magnúsi Birgissyni (IPGA) - SPGA) og Ragnhildi Sigurðardóttur (IPGA).  Yfir 2200 nemendur hafa lært golf í golfskólum á þeirra vegum í Portúgal og á Spáni. Þau hafa fengið reynda gestakennara sér til aðstoðar og hefur Karl Ómar Karlsson (IPGA - SPGA) golfkennari Leynismanna á Akranesi kennt við skólann undanfarin misseri. Skólinn hefur síðan vorið 2006 verðið staðsettur á Costa Ballena. Aðstæður á Costa Ballena fyrir golfkennslu eru hreint út sagt frábærar sem eykur gæði kennslunar. Gæði, reynsla og frábærar aðstæður gera það að verkum að þú verður ekki svikinn að því að setjast á skólabekk syðst í Andalúsíu og nema golfíþróttina í heila viku.  

Golfnámskeið vorið 2012 verða í öllum ferðum á Costa Ballena. 

Upplýsingar um verð og annað er að fá hjá sölufulltrúm Heimsferða í síma 595-1000 eða með því að senda tölvupóst á netfangið sala@heimsferdir.is.


Bókaðu á netinu

Fyrir bókanir á Arcos Gardens, svítur eða annað, vinsamlegast hringið í Hörð í síma 618-4300 eða sendið vefpóst á sport@heimsferdir.is

Veðrið



Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur