Vinsælasti golfdvalarstaður Íslendinga á Spáni síðan 2006
· 31. mars – 10. apríl 10 nætur – páskar
· 10. – 19. apríl 9 nætur
· 19. – 22. apríl 3 nætur
· 22. Apríl – 2. Maí 10 nætur
· 2. – 12. Maí 1 nætur
Innifalið:
· Beint leiguflug til Jeres með Icelandair, aðeins 30 mín keyrsla frá flugvelli. Farþegar okkar geta verið komnir í golf rúmum klukkutíma eftir að þeir lenda.
· Flugvallarskattar
· Flutningar á golfsettum
· Rútur til og frá flugvelli
· Gisting með morgunverði og kvöldverði
· Ótakmarkað golf alla daga
· Golfkerrur og æfingaboltar
· Fararstjórn
· Golfskólinn er starfræktur á Costa Ballena
Costa Ballena:
Heimsferðir bjóða glæsilegar golfferðir vor og haust til eins af bestu golfsvæðum Evrópu, Costa Ballena á Spáni sem óhætt er að segja að slegið hafi í gegn meðal íslenskra kylfinga sem þangað hafa farið. Lagt er upp með að allar aðstæður til golfiðkunar og öll umgjörð, s.s. gisting, fararstjórn og þjónusta séu fyrsta flokks. Fyrir þá sem vilja prófa aðra golfvelli eru meira en 14 glæsilegir golfvellir í næsta nágrenni. Fyrir þá sem vilja skoða meira en golfvelli er aðeins 20 mínútna akstur til borgarinnar Jerez og einnig er stutt til hinnar sögufrægu borgar Cadiz og fleiri bæja þar sem frábært er að njóta mannlífsins og menningarinnar.
Hotel Barcelo Golf and Spa – Costa Ballena ****
Glæsilegt fjögurra stjörnu hótel með heilsulind sem opnaði í júní 2005. Hótelið er staðsett í þriggja mínútna göngufæri frá golfskálanum og býður upp á fullkomna slökun eftir afrek dagsins, einnig er falleg strönd í 500 m. fjarlægð frá hótelinu. Öll herbergi eru með sjávarsýn og útsýni yfir golfvöllinn. Herbergi eru með góðum baðherbergjum með hárþurrku, loftkælingu, síma, internettengingu, gervihnattasjónvarpi, minibar, öryggishólfi og svölum. Góð heilsulind er á hótelinu ásamt margvíslegri þjónustu. Tvær sundlaugar eru í garðinum.
Golfsvæðið – Costa Ballena:
Golfsvæðið er hannað af tvöfalda US Masters meistaranum Jose Maria Olazabal. Golfvöllurinn er 27 holur auk 9 holu par-vallar. Svæðið er eitt stærsta og best útbúna kennslu- og æfingasvæði á Spáni og er staðsett við ströndina. Æfingasvæðið er flóðlýst og geta 140 manns verið við æfingar í einu. Við æfingasvæðið er stór og góð púttflöt þar sem hægt er að æfa allar tegundir af púttum, auk vippsvæðis, þar sem hægt er að æfa högg frá 5 metrum upp í 80 metra ásamt glompuhöggum.
Par-3 holu völlurinn:
Vötn koma skemmtilega við sögu á þessum litla en skemmtilega velli. Hann liggur við ströndina og er með glæsilegum og krefjandi holum. Stysta brautin er 100 metrar og lengsta brautin er 180 metrar.
Klúbbhúsið:
Klúbbhúsið er vel staðsett með veitingastað, bar og verönd með útsýni yfir æfingasvæðið og ströndina. Í klúbbhúsinu er líkamsræktaraðstaða, gufuböð, nuddpottar og fín golfverslun. Vellirnir bjóða upp á alvöru golf fyrir alla kylfinga en fremur sléttir og þægilegir að ganga.
Kíktu nánar hér á golfvöllinn og aðstöðuna: http://www.ballenagolf.com
Matvöruverslun og Verslanamiðstöð:
Í næsta nágrenni við hótelið er stórmarkaður þar sem verð á vatni og vistum er mjög gott. Flestir af okkar farþegum nýta sér skutluþjónustu okkar en við bjóðum upp á reglulegar ferðir í matvörubúðina. Einnig er í 10 mínútna akstursfjarlægð nýleg verslunarmiðstöð og margir hafa nýtt sér skutluþjónustu þangað og gert góð kaup. Þar er að finna margar fínar búðir eins og t.d. H&M, Zara, íþróttavöruverslanir, leður og gull svo eitthvað sé nefnt.
Golfskólinn:
Golfskólinn þinn hefur verið leiðandi í golfkennslu Íslendinga erlendis frá árinu 1997. Nánari upplýsingar má finna hér.
Fyrir bókanir á Arcos Gardens, svítur eða annað, vinsamlegast hringið í Hörð í síma 618-4300 eða sendið vefpóst á sport@heimsferdir.is