Netklúbbur


Arcos Gardens - Golfsvæðið

Fimm stjörnu Golfperla í náttúruparadís - golfbíll innifalinn 

            22. mars - 1. apríl          10 nætur - Uppselt!
01. - 08. apríl        
             7 nætur        

08. - 15. apríl                     7 nætur
15. - 25. apríl                   10 nætur - Uppselt !
29. - 09. maí                     10 nætur

Innifalið í öllum ferðum:

Beint leiguflug til Jerez með Icelandair, aðeins 40 mín keyrsla frá flugvelli.
Flugvallaskattar
Flutningur á golfsettum
Rútur til og frá flugvelli
Gisting með morgunverði og kvöldverði ( A la carte)
Ótakmarkað golf alla daga með golfbíl 
Æfingaboltar
Fararstjórn frá Costa Ballena

Arcos Gardens golfsvæðið

Stórkostlegur golfvöllur sem hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum.  Fallegt umhverfi í ólífugarði með stórkostlegt útsýni yfir hið fornfræga þorp Arcos. Völlurinn var hannaður árið 2005 og er nú þegar orðinn einn helsti keppnisvöllur á Spáni. Flatirnar eru mjög krefjandi, stórar og með miklu landslagi sem gera brautirnar allar mun fjölbreyttari.

Hotel Cortijo Fain – Arcos Gardens Resort *****
Glæsilegt, lítið og ekta spánskt fimm stjörnu sveitahótel við stórkostlegan golfvöll. Hótelið sem og golfsvæðið hafa rækilega slegið í gegn hjá viðskiptavinum okkar. Svæðið er ca. 3 km frá hinum sögufræga bæ Arcos en bærinn situr eftst í þverhníptu klettabelti og þaðan er tignarlegt útsýni til allra átta.
Einnig bjóðum við upp á gistingu í glæsilegum nýjum raðhúsum, Fairways Gardens, sem  eru á golfsvæðinu. Húsin eru 128 fermetrar með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Sjón er sögu ríkari! 

Kíktu á nánari upplýsingar um Arcos Gardens golfsvæðið hér! 


Bókaðu á netinu

Fyrir bókanir á Arcos Gardens, svítur eða annað, vinsamlegast hringið í Hörð í síma 618-4300 eða sendið vefpóst á sport@heimsferdir.is

Veðrið



Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur