Netklúbbur

Skilmálar í "Stökktu tilboði"


Skilmálar "Stökktu tilboðs"


“Stökktu - tilboð"  felur  í sér að viðskiptavinur festir kaup á flugsæti og gistingu á tilgreindum áfangastað Heimsferða. Fjórum dögum fyrir brottför, ekki fyrr en mögulega síðar, sendir ferðaskrifstofan út ferðagögn með upplýsingum um gististað sem viðkomandi hefur verið úthlutað. Ekki er hægt að gera ráð fyrir því að sú gisting sem úthlutað verður sé kynnt í sölubæklingum eða á heimasíðu Heimsferða. Gæði gistingar eru að lágmarki 2* eða sambærileg. Vert er að taka fram að farþegar gætu þurft að skipta um gististað meðan á dvöl stendur. Gefa þarf upp tölvupóstfang við bókun þar sem ferðagögn eru send rafrænt til farþega. Ef viðskiptavinur hefur ekki tölvupóstfang er það á hans ábyrgð að nálgast ferðagögn á skrifstofu Heimsferða fyrir brottför.

Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur