Netklúbbur

Ýmsar upplýsingar


tenerife_ameriska_strondinSólin og ströndin

Margir fara til suður-Tenerife til þess að njóta strandlífsins og þeir verða ekki fyrir vonbrigðum. Hér er hægt að velja milli mikils fjölda frábærra stranda. Strendurnar eru almennt barnvænar, stilltar öldur og sjaldnast mikið dýpi. Á sumrin eru heimamenn áberandi á ströndunum þar sem þeir leita kælingar en á veturna eru ferðamennirnir allsráðandi.

Skemmtilegir bæir
Los Cristianos er syðst á svæðinu. Göturnar liggja þar eins og völundarhús og á köflum getur maður ennþá fundið fyrir stemmningunni frá því þetta var lítill fiskimannabær. Þar eru margar smágötur með fullt af litlum verslunum, veitingastöðum og fleiru sem skemmtilegt er að skoða. Í norðurátt tekur hinn nýrri Playa de las Americas bær við með stór hótel, margar verslanir auk verslunargötu. Hér eru veitingastaðir sem bjóða fjölbreyttan mat; kínverskan, indverskan, að sjálfsögðu spánskan og margt fleira. Einnig eru hér pöbbar og kaffihús. Hér er einnig gott að leita fyrir sér ef maður er á höttunum eftir næturlífi. Hér er fullt af börum, diskótekum og dansstöðum.

Verslun
Það er mikið af verslunum á orlofsstöðunum. Göngugöturnar í Los Cristianos eru fullar af fallegum verslunum og í Parque Santiago 3 og El Duque verslunarmiðstöðvunum er mikill fjöldi verslana, m.a. fataverslanir, húsbúnaðarverslanir, barnafataverslanir, stórmarkaðir með fjölbreytt úrval, auk veitingastaða og bara ásamt fleiru. Einnig eru reglulega markaðir á svæðinu.

Kynnisferðir
Náttúran og landslagið á Tenerife er mjög fjölbreytt. Hiklaust er hægt að mæla með því að þú farir í skoðunarferðir um eyjuna og njótir alls þess sem hún hefur að bjóða umfram fagrar strendur og afslöppun. Fjölbreytt úrval spennandi kynnisferða er í boði með fararstjórum Heimsferða.

tenerife_aqualandFrábært fyrir börnin
Tenerife er góður og öruggur staður til að vera á ferð með börn. Strandgatan í Los Cristianos og Playa de las Americas er breið og því létt að fara þar um með barnakerru. Á mörgum stöðum eru klifurgrindur og trampólín fyrir stærri börnin. Strendurnar eru almennt barnvænar og fjölbreyttir staðir þar sem gaman er að fara með fjölskylduna.

Fjölbreyttir skemmtigarðar 
  • AquaLand Tenerife
  • Parque Las Aguilas
  • Parques Exoticos
  • Amazonia
  • Kaktus-garðurinn
  • Animal Park

Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur