Skemmtigarðar
Aqualand
www.aqualand.es/tenerife/
Opið allt árið.
Opnunartími: 10:00 til 18:00

Höfrungasýningar á hverjum degi.
Mán. - Fim. kl. 13:00 og 15:30
Fös. - Sun. kl. 15:00
Aqualand er stærsti vatnsrennibrautagarðurinn á eyjunni. Boðið er upp á allskyns skemmtitæki, vatnsrennibrautir, sundlaugar, matsölustaði, höfrungasýningar og margt fleira. Farþegar geta buslað í vatni, sólað sig og látið reyna á adrenalínið allan daginn. Dásamleg skemmtun fyrir alla aldurshópa.
Loro Parque
www.loroparque.com/
Opið allt árið.
Opnunartími: 08:30 til 18:45

Það gengur lest um garðinn á 20 mín. fresti (frítt).
Fyrir ofan miðbæinn í Puerto de la Cruz er dýragarðurinn
Loro Parque staðsettur. Í garðinum er mikill fjöldi fugla og dýra, m.a. stærsta páfagaukasafn í heimi. Einnig má finna tígrisdýs, simpansa, górillur, krókódíla og margt margt fleira. Margar dýrasýningar eru í boði, s.s. páfagauka-, sæljóna-, höfrunga-, og háhyrningasýningar. Í garðinum eru tvær forvitnilegar byggingar. Önnur er heimur mörgæsanna og þar snjóar um 15 tonn af snjó daglega. Hin er sædýrasafnið þar sem hákarlar og aðrir fiskar synda fyrir ofan okkur í glergöngum.
Jungle Park - Frumskógadýragarðurinn
www.aguilasjunglepark.com/
Opið allt árið.
Opnunartími: 10:00 til 17:30

Sýningar daglega.
Garðurinn hefur að geyma öll þau frumskógadýr sem hægt er að hugsa sér. Mikið af þeim eru í útrýmingarhættu í dag. Dýrasýningar eru reglulega og sérstaklega skemmtileg fuglasýning þar sem ernir, uglur, hrægammar o.fl. fljúga undir berum himni. Hægt er að upplifa frumskóginn í hengibrú, rennibraut og öðrum klifurtækjum. Spennandi veröld fyrir börn og fullorðna.
Ýmis afþreying:
Úlfaldasafarí
www.teneriferesorts.com/any/trwcamel.aspx/
Fjórhjólasafarí
www.quadparktenerife.com/
Golf
www.tenerifegolf.es/
Apagarður
www.monkeypark.com/