Hagnýtar upplýsingar
FYRIR BROTTFÖR
Nauðsynlegt er að hafa gilt vegabréf í ferð til Spánar eins og til annarra landa. Gott ráð er að hafa líka ljósrit af vegabréfinu með í för. Við bendum farþegum á Evrópska sjúkratryggingakortið sem veitir rétt á allri nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu á ríkisreknum stofnunum í löndum EES. Nánar hjá Tryggingastofnun ríkisins (
www.tr.is). Ef viðskiptavinir kjósa að fara til einkarekinnar læknastofu greiða tryggingarfélög oft þann kostnað ef fólk er tryggt fyrir því. Oftast þarf þó sjúklingurinn að bera einhverja sjálfsábyrgð, en það fer alveg eftir tryggingarskilmálum hvers og eins. Takið með ykkur tryggingakort frá ykkar tryggingafélagi. Farþegar með erlent vegabréf þurfa sjálfir að kanna hvort þeir þurfa vegabréfsáritun inn í landið
VIÐ KOMU
Fararstjórar Heimsferða taka á móti hópnum á flugvellinum á Tenerife og ekið er í rútu frá flugvelli til hótels fyrir þá sem það kjósa. Tekur sú ferð um 30 mínútur. Gætið þess að koma sjálf farangri ykkar í rútuna til að tryggja að hann verði ekki eftir á flugvellinum.
KYNNISFUNDUR
Daginn eftir komu er kynnisfundur með fararstjórum Heimsferða og ráðleggjum við öllum að mæta, því réttar upplýsingar í byrjun ferðarinnar geta gert gæfumuninn. Þar er Tenerife kynnt, hvað er spennandi í boði meðan á dvöl stendur, hvað ber að varast og hverju má ekki missa af.
KYNNISFERÐIR
Greiðsla á ferðum og öðru fer fram í hótelheimsóknum og á komufundi, einungis er hægt að greiða með evrum. Athugið að ekki er hægt að greiða með greiðslukortum.
HÓTELIÐ
Ef eitthvað er að varðandi þjónustu hótelanna eða aðbúnaður á herbergi eða íbúð ekki í lagi, talið þá við hótelafgreiðslu og látið fararstjóra vita strax svo að hægt sé að lagfæra hlutina, því ekkert er hægt að gera eftir að heim er komið.
LÆKNAR OG APÓTEK
Opnunartími apóteka er yfirleitt frá 09.00 – 19.00, þó er hægt að finna apótek á Playa Americas þar sem er opið allan sólarhringinn. Sjúkrahúsið Hospiten Sur er með enskumælandi túlk og er hægt að hringja í gjaldfrjálst símanúmer 900 200 143. Einnig er heilsugæslan Villar E Ibarra með enskumælandi túlk, símanúmerið þar er 922 777 870 (00 34 fyrir framan ef hringt er úr gsm).
BANKAR
Bankar eru nánast á hverju götuhorni, en opnunartími þeirra er sem hér segir:
Virka daga frá 08:30-14.00. Laugardaga frá 08:30-13:00. Öruggast er að nota hraðbanka við bankaútibú.
BÍLALEIGUBÍLAR
Fyrir milligöngu fararstjóra er hægt að leigja bílaleigubíla, íslenskt ökuskírteini nægir. Munið að panta með góðum fyrirvara. Nánari upplýsingar veita fararstjórar. Einnig er hægt að bóka bílaleigubíla á skrifstofu Heimsferða fyrir brottför.
GOLF
Mjög góð aðstaða er á Tenerife til golf iðkunar, þið getið fengið nánari upplýsingar hjá fararstjórum.
HÓTELREGLUR
Á öllum gististöðum eru strangar reglur um umgengni og eru gestir beðnir að kynna sér þær. Ætlast er til að ró sé komin á kl. 24:00. Vinsamlegast virðið þessar reglur og sýnið öðrum tillitssemi.
LEIGUBÍLAR
Leigubíla er yfirleitt auðvelt að finna. Innheimt er eftir gjaldmæli, góð regla er að spyrja um verð áður en lagt er af stað. Gott er að taka niður leigubílanúmer bílsins áður en lagt er af stað ef eitthvað skyldi verða eftir í bílnum.
GREIÐSLUKORT
Við ráðleggjum ferðalöngum að hafa slík kort með sér þó ekki sé nema öryggisins vegna. VISA og EURO eru jafngild. Þægilegasti mátinn er að taka út peninga á kortin í hraðbönkum við bankaútibú, en þá þurfa korthafar að vita PIN-númerið sitt. Geymið aldrei PIN-númer hjá kortinu og verið aldrei með of mikla fjármuni á ykkur. Ef kort tapast, hringið í viðkomandi neyðarnúmer og látið loka kortinu: VISA (00354) 525 2000 eða 525 2200. MASTERCARD (00354) 533 1400. Sé farið í banka þarf að hafa vegabréfið meðferðis.
MAGAVEIKI
Margir verða fyrir því að fá í magann og vilja gjarnan kenna matnum um. Í fæstum tilfellum er um matareitrun að ræða, heldur er um breytt loftslag, breyttar svefnvenjur eða breytt mataræði að ræða, einnig ef notaður er mikill klaki í drykki. Ef þið kennið ykkur meins, hafið þá samband við fararstjóra eða lækni.
RAFMAGN
Hægt er að nota öll algeng tæki hér eins og heima á Íslandi. Sami straumur og á Íslandi. Varist samt innstungur á baðherbergjum, þær eru oft eingöngu ætlaðar rakvélum.
SÍMI
Hægt er að hringja beint frá Tenerife til Íslands. Veljið fyrst 00 og síðan 354 fyrir Ísland og veljið síðan viðkomandi númer á Íslandi. Ódýrara er að hringja úr almenningssíma eða símstöð, en af hóteli.
SÓLBRUNI OG SÓLBÖÐ
Við sólbruna eru til mörg góð húsráð, en það besta er kæling!!!! Sé um meiriháttar bruna að ræða ber að hafa tafarlaust samband við lækni. Ástæða er til að benda ykkur á að fara varlega í sólböðin. Gott er að kaupa sér vörn og vera stutt í sólinni fyrstu dagana. Nauðsynlegt er að vera með höfuðfat yfir heitasta tímann. Hafið börnin í bolum fyrst um sinn, og forðist ströndina fyrstu vikuna.
STRÆTISVAGNAR
Strætisvagnar ganga um allar strendurnar á Tenerife á um það bil 10 mín. fresti. Hægt er að fá leiðavísir strætisvagna á upplýsingamiðstöðum eða hjá fararstjórum.
UPPLÝSINGAMAPPA
Á hverjum gististað Heimsferða er upplýsingamappa. Þar eru settar allar helstu upplýsingar og þau skilaboð sem fararstjórar þurfa að koma til farþega. Það er góð regla að líta a.m.k. einu sinni á dag í möppuna.
VATN
Vatnið í krönunum er drykkjarhæft í flestum tilfellum en við viljum benda fólki á að kaupa drykkjarvatn, sem inniheldur steinefni (mineral), þar sem steinefnin tapast úr líkamanum í hitanum. 1 – 2 lítrar af vatni á dag er hæfilegur skammtur ásamt öðrum drykkjum.
ÞJÓRFÉ
Enn er það siður á Spáni að gefa þjórfé, en aðeins ef þið eruð ánægð með þjónustuna. Vaninn er að gefa um 5% á veitingastöðum, en herbergisþernum er ágætt að gefa 3 – 5 evrur á viku allt eftir því hvort þið eruð ánægð eða ekki. Eins er siður að gefa bílstjórum einhverja smámynt í lok ferðar. Athugið að enginn er skyldugur að gefa þjórfé !!!
ÖRYGGISHÓLF
Þau heita á spænsku "Caja fuerte", en á ensku "safety box". Við viljum benda gestum á að geyma greiðslukort, gjaldeyri, vegabréf, farseðla og önnur verðmæti í læstu öryggishólfi, sem fást leigð gegn gjaldi í gestamóttöku. Athugið að farþegar eru sjálfir ábyrgir fyrir lykli hólfsins.