Netklúbbur

Mallorca - Perla Miðjarðarhafsins

mallorcaMallorca hefur verið ókrýnd drottning ferðamanna undanfarin 40 ár, enda státar eyjan af heillandi umhverfi, fjölbreyttri náttúrufegurð, gullfallegum ströndum og frábærri aðstöðu fyrir ferðamanninn. Hér er frábært að lifa og njóta í fríinu, heillandi bæir með sérstakan karakter og yfirbragð og því þreytist maður aldrei á að flakka um og kynnast nýjum sjónarhornum eyjarinnar fögru. Heimsferðir hafa valið vinsælustu strendurnar fyrir farþega sína, Santa Ponsa, Playa de Palma og Cala d'Or. 

Lengd flugs milli Íslands og Mallorca: 4 klst.     
Gjaldmiðill: Evra
Tungumál: Spænska
Tímamismunur: +2 klst.


Santa Ponsa
Santa Ponsa stendur í botninum á fallegum flóa og nýtur skjóls af fjöllum á tanga vestan megin flóans. Hvít sandströndin er löng og breið og er mjög barnvæn eins og reyndar þessi skemmtilegi ferðamnnabær er í hvívetna. Strandsvæðið er mjög notalegt og eru þar m.a. margir útiveitingastaðir. Sjálfur bærinn er fullur af lífi yfir ferðamannatímann, með fullt af veitingastöðum, verslunum börum og afþreyingu fyrir ferðamenn sem vilja njóta lífsins í sumarfríinu.

Playa de Palma
Playa de Palma er rétt utan við Palma borg og er ávallt vinsæl vegna nálægðar við borgina og frábærrar strandar. Þar er yndisleg hvít strönd sem býður frábæra gististaði, iðandi mannlíf jafnt að degi sem kvöldi, ótrúlegt úrval veitingastaða, verslana og skemmtistaða. Ströndin teygir sig kílómetrum saman meðfram flóanum með fjölda veitinga-, og skemmtistaða. Hótel Heimsferða eru öll með hótelgörðum, en hér getur þú líka valið um að rölta á ströndina og njóta mannlífsins eða skjótast inn í Palma og týna þér í gamla bænum.

cala-dor-mallorcaCala d´Or
Cala d´Or, eða "Gullvíkin", er í flestu tilliti á verðlaunapalli þegar kemur að krýningu á bestu sumarleyfisstöðum þessarar einstöku perlu sem Mallorca er. Við Cala d’Or eru alls sjö víkur og það eru m.a. þessar einstöku baðstrendur sem hafa lagt mikið til hins góða orðspors sem fer af Cala d’Or sem sumarleyfisstað. Hér er sjórinn kristaltær og fallegar sandstrendurnar innst í víkunum njóta einstaks skjóls af klöppunum í kring. 
Cala d´Or bærinn er fallegur og einkennist m.a. af lágum hvítmáluðum byggingum í klassískum Miðjarðarhafsstíl. Gróðurinn er fjölskrúðugur og mjög víða eru græn svæði með einstaklega fallegum gróðri. Í bænum er úrval veitingastaða, bara og verslana er mikið. Við fallegar göngugöturnar í miðbænum er fullt af útiveitingastöðum og iðandi mannlíf frá morgni til kvölds.
Óhætt er að segja að Cala d´Or standi fyrir flest það besta sem Mallorca hefur að bjóða ferðamönnum.

Alcudia
Alcudia er um 52 km norðaustur af Palma. Hótelin standa nær öll á strandlengjunni við Alcudia flóann en elsti bæjarhlutinn, „gamli bærinn“ er í um 3ja km fjarlægð frá ströndinni. Markaðir eru haldnir tvisvar í viku og þar kennir ýmissa grasa allt frá matvöru til minjagripa. Í Alcudia og nágrenni er að finna eitthvað við allra hæfi. Úrval verslana, veitingastaða, bara og næturklúbba. Náttúrufegurðin þykir líka einstök við Alcudia og ströndin þykir ein sú fallegasta á eyjunni með hvítum sandi eins langt og augað eygir og sjórinn talinn sá tærasti við Mallorca. 


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur