Netklúbbur

Kúba - Dansarar

Kúba 25. október í 7 nætur

KúbaKúba sló svo sannarlega í gegn hjá Íslendingum frá því að við buðum ferðir þangað í fyrsta sinn.  Þá er Heimsferðum ánægja að bjóða upp á ferðir í þessa paradís aftur, eftir nokkurra ára hlé.  Vetrarmánuðirnir á Íslandi eru aðalferðamannatíminn á Kúbu, enda veðrið þá best á þessari fögru eyju, hitinn milli 27-30 gráður og lofslagið frábært á þessum árstíma. Í boði eru fjölbreyttir og spennandi valkostir; dvöl í Havana eða á Varadero ströndinni allan tímann, eða skipta dvölinni og upplifa ólíka hluta Kúbu í einni ferð.


Havana - fólkHavana
Havana er þekktasta borg Karíbahafsins. Í borginni eru einhverjar best varðveittu byggingar frá spænska nýlendutímanum, enda eru þær nú undir verndarvæng UNESCO. Í Havana er ógleymanlegt að ganga um gamla hluta borgarinnar sem er stórkostlega fallegur. Hér fara allir á byltingarsafnið, kynnast veitingastaðnum Bodeguita del Medio sem Hemingway gerði frægan eða fara eitt kvöld á Tropicana næturklúbbinn þar sem þú horfir á fegurstu dansara heimsins undir berum himni.



Varadero
VaraderoVaradero er einhver fegursta baðströnd heims. Hér hefur ótrúleg uppbygging átt sér stað og fjöldi glæsihótela verið byggður. Í Varadero eru frábærar aðstæður fyrir sólböð, íþróttaiðkun (t.d. 18 holu golfvöllur), tennis, sjóstangveiði, skútusiglingar og margt fleira. Hér er einstakt að njóta lífsins.

Gríptu þetta frábæra tækifæri til að upplifa Kúbu, eina fegustu eyju Karíbahafsins og örugglega þá sérstæðustu. Heimsferðir bjóða þér fjölbreytta gistimöguleika bæði í Havana og á Varadero.




Jeppasafarí - KúbaSpennandi kynnisferðir  (gæti breyst)

  • Havana
  • Tropicana næturklúbburinn
  • Ganga um Vedadohverfið
  • Vinales dalurinn
  • Sólarsigling
  • Jeppasafarí frá Varadero


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur