Netklúbbur

rFlug til Kanarí

Golf á Kanarí

Á Gran Canaria eru fimm 18 holu golfvellir sem eru opnir almenningi, þ.a. áhugasamir kylfingar geta haft nóg fyrir stafni. Þú færð frekari upplýsingar um það sem í boði er hjá fararstjórum Heimsferða og sértilboð á Maspalomas golfvöllinn. 

Bandama Golf Club
Er fyrir ofan borgina Las Palmas. Elsti golfklúbbur Spánar – stofnaður 1891. Völlurinn mun yngri.
 
Salober Golf 
Hann er á leiðinni á milli Ensku strandarinnar og Puerto Rico. Þar má aðeins fara um á golfbíl. Hæðóttur 18 holu völlur.

El Cortijo
Er við Telde, sem er rétt aður en komið er til Las Palmas. 18 holu golfperla. Þar er einnig að finna fallegan 18 holu par 3 völl.

Maspalomas Golf
Á Maspalomassvæðinu. Sléttur 18 holu völlur. Hægt er að leika 9 holur á honum eftir kl. 16.00.
Farþegar Heimsferða hafa afslátt af vallargjöldum/golfpössum á Maspalomasvellinum.
(Fararstjórar sjá um að útvega bréf sem sýna þarf á vellinum til að fá afsláttinn.)

Meloneras Golf
Nýjasti völlurinn, opnaði sumarið 2003. 18 holur, par 72, hannaður af Ron Kirby. Staðsettur rétt hjá Maspalomas.


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur