Netklúbbur

Spennandi kynnisferðir

Costa del SolDagskráin hér að neðan er einungis til viðmiðunar fyrir sumarið 2012 og ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til breytinga á henni. Lágmarksþátttaka þarf að nást til þess að íslenskur fararstjóri fari með hópnum.  Frekari upplýsingar um kynnisferðir fást hjá fararstjórum við komu til Costa del Sol.

Suðurhluti Spánar er heillandi blanda ólíkra menningar áhrifa. Rómverjar lögðu landið undir sig og kölluðu Beaticu, eða „hina fögru“ og var Spánn þeirra gjöfulasta nýlenda. Márar reistu þar heimsveldi sitt og skildu eftir sig menningar arfleifð sem á engan sinn líka. Þarna sátu konungshjónin kaþólsku, Ísabella og Ferdinand þegar þau sendu Kólumbus til Nýja heimsins. Fararstjórar Heimsferða bjóða þér spennandi kynnisferðir til heillandi staða Andalúsíu, til Gíbraltar eða Afríku og tryggja að þú komir reynslunni ríkari heim úr fríinu.

Ævintýraferð fyrir alla
Einstök ferð fyrir fólk á öllum aldri. Lagt er af stað upp úr níu og keyrt upp í Benalamadena pueplo. Byrjum á því að skoða undurfagran kastala sem byggður var af Esteban Martín og tveim aðstoðarmönnum til heiðurs Columbus og ferð hanns til Ameriku. Kastalinn er allur handgerður og tók 7 ár að byggja hann. Síðan er ferð okkar haldið í fiðrildargarðinn. Garðurinn er yfirbyggður og göngum við um þar sem fiðrildin flögra um og skoðum þær fjölbreyttu tegundir sem þar eru. Þarna inni flögra þúsundir fiðrilda um af öllum stærðum og gerðum einnig fáum við að sjá fiðrildi skríða úr púpum sínum. Að lokum förum við í musteri Búdda, skoðum hofið og safn sem þar er og fræðumst örlítið um búdda. Þetta er einstök ferð sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Getum lofað ykkur að í þessari ferð náið þið einstökum myndum því fyrir utan hvað kastalinn,fiðrildin og musterið er fallegt þá er þarna einstakt útsýni yfir costa del sol. Komið er til baka rúmlega tvö.

Mijas og Molino de la Paca
Einstaklega skemmtileg og létt ferð fyrir alla.Lagt er af stað um klukkan 9 upp í þorpið Mijas sem stendur upp í fjallinu fyrir ofan Fuengirola. Ekta Andalúciu þorp með hvítkölkuðum húsum og þröngum götum. Fræðumst örlítið um sögu þessa þorps og skoðum kapelluna. Síðan fær fólk frjálsan tíma til að skoða sig um. Í Mijas er minitura safn þar sem meðal annars er hægt að sjá síðustu kvöldmáltíðina málaða á hrísgrjón, lítill nautaatshringur sem byggður var árið 1900, margar fallegar minjagripabúðir og svo að sjálfsögðu BURRO TAXI. Fallegur bær með fallegt útsýni yfir Costa del sol. Síðan er haldið í Molino de la Paca en það er verksmiðja eða milla eins og það er kallað á spáni síðan 1820. Keyrum þangað í gegnum sveitir Andalúciu og njótum náttúrunnar. Fræðumst um ræktun ólífa á spáni og skoðum eina af elstu millum Andalúsiu. Þegar uppeftir er komið tekur á móti okkur starfsmaður sem fer með okkur í gegnum milluna og segir okkur stuttlega hvernig ólífuolía var búin til hér áður fyrr og hvernig hún er gerð í dag. Síðan fáum við að smakka brauð með ólífuoliu, ólífur,snakk og vín frá Malaga. Löbbum um og skoðum ólífutréin en þarna eru einnig appelsínutré, fíkjutré og granateplatré, tökum myndir og eigum góða stund í sveitinni. Komið er til baka milli kl. 14 -15.

Verslunarferð til Marbella
Ferð í verslunarmiðstöð í La Canada, sem er með mörgum góðum verslunum, s.s. Topshop, Body Shop, H&M, Punto Roma, Intersport og C&A svo einhverjar séu nefndar.  Einnig er að finna þar FNAC, sem er stór verslun með bækur, tölvuleiki, DVD myndir og CD.  Fínir veitingastaðir eru líka í miðstöðinni.

Gíbraltar
Létt og skemmtileg ferð þar sem þú kynnist lífi eyjarskeggja á þessum sérkennilega kletti sem er bæði enskur og spænskur. Ein vinsælasta ferð Heimsferða því allir vilja koma að minnsta kosti einu sinni í klettinn, eins og Gíbraltar er kallað í daglegutali. Farþegar verða að hafa með sér vegabréf.

Ferðir í boði með enskum fararstjóra: 

Afríka - Morocco

Ógleymanleg ferð til Afríku, en aðeins er klukkustundar sigling frá hafnarbænum Algeciras yfir til hafnarborgarinnar Ceuta í Afríku. Farið til Tetúan, bæjar í Marokkó þar sem þú kynnist gömlu hverfum borgarinnar með dæmi gerð um mörkuðum og ótrúlegu mannlífi sem kemur á óvart í nútímanum.

Ferðir eru háðar lágmarksþátttöku.


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur