FYRIR BROTTFÖR
Nauðsynlegt er að hafa gilt vegabréf í ferð til Spánar eins og til annarra landa. Gott ráð er að hafa líka ljósrit af passanum með í för. Við bendum farþegum á Evrópska sjúkratryggingakortið sem veitir rétt á allri nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu á ríkisreknum stofnunum í löndum EES. Nánar hjá Tryggingastofnun ríkisins (www.tr.is). Ef viðskiptavinir kjósa að fara til einkarekinnar læknastofu greiða tryggingarfélög oft þann kostnað ef fólk er tryggt fyrir því. Oftast þarf þó
sjúklingurinn að bera einhverja sjálfsábyrgð, en það fer alveg eftir tryggingarskilmálum hvers og eins. Farþegar með erlent vegabréf þurfa sjálfir að kanna hvort þeir þurfa vegabréfsáritun inn í landið.
VIÐ KOMU
Fararstjórar Heimsferða taka á móti hópnum á flugvellinum í Jerez eða Sevilla (eftir því sem við á). Þeim sem eiga bókað hótel er ekið í rútum frá flugvelli til hótels. Gætið þess að koma sjálf farangri ykkar í rútuna til að tryggja að hann verði ekki eftir á flugvellinum og gætið þess að gleyma engu í rútunum.
BROTTFÖR - FARARSTJÓRAR
Farþegar vinsamlegast lítið á upplýsingatöflu og/eða upplýsingamöppu Heimsferða varðandi heimflugið ykkar daginn.
KYNNISFUNDUR OG VIÐTALSTÍMAR
Daginn eftir komu er kynnisfundur með fararstjórum Heimsferða á hótelunum og ráðleggjum við öllum að mæta, því réttar upplýsingar í byrjun sumarleyfis geta gert gæfumuninn. Þar er Costa del Sol kynnt, hvað er spennandi í boði meðan á dvöl stendur, hvað ber að varast og hverju má ekki missa af.Fararstjórar eru með fasta viðtalstíma fyrir alla gististstaði Heimsferða. Í viðtalstímum fer fram skráning farþega í kynnisferðir og alhliða aðstoð við gesti. Hikið ekki við að leita strax til fararstjóra ef um veikindi er að ræða. Neyðarnúmer fararstjóra er 661555281( ef hringt er frá íslandi 00 34 á undan) Ef eitthvað er að varðandi þjónustu hótelanna eða aðbúnaður á herbergi eða íbúð ekki í lagi, verður að láta fararstjóra vita strax, því ekkert er hægt að gera eftir að heim er komið.
UPPLÝSINGAMAPPA
Á hverjum gististað er upplýsingamappa Heimsferða. Á henni er að finna hagnýtar upplýsingar og öll þau skilaboð sem fararstjórar þurfa að koma til farþega.
SÓLIN
Það fyrsta sem fólk þarf að vara sig á. Það er mjög fljótgert að eyðileggja sumarleyfið með því að brenna illa. Farið varlega fyrstu dagana í sólinni á meðan hver og einn finnur hve vel hann þolir sólina og notið alltaf sólarvörn.
LÆKNAR
Góð læknisþjónusta er á staðnum og er hægt að fá ENSKUMÆLANDI lækni heim á hótel með milligöngu fararstjóra. Upplýsingar um læknisþjónustu er að finna í upplýsingamöppu Heimsferða á hótelunum. Læknaþjónustan heitir SERVICIO MEDICO COSTA DEL SOL. Íslendingar eru tryggðir innan EES ef um ríkisreknar heilsugæslur og sjúkrastofnanir er að ræða. EKKI á einkareknum stofnunum.
KREDITKORT
Yfirleitt er hægt að nota kreditkort, ráðleggjum við ferðalöngum að hafa slík kort með sér þó ekki sé nema öryggisins vegna. VISA og EURO eru jafngild. Einnig er hægt að taka út peninga á kortin í hraðbönkum, en þá þurfa korthafar aðvita PINnúmerið sitt. Sumstaðar er beðið um vegabréf þegar greitt er með kreditkorti. Ef kort tapast, hringið í viðkomandi neyðarnúmer og látið loka kortinu: VISA (00354) 525 2000 eða 525 2200. EURO (00354) 533 1400.
DRYKKJARVATN
Kranavatnið er drykkjarhæft en við mælum frekar með vatni á flöskum til drykkjar, þó ekki sé nema bragðsins vegna. Þeim sem eru viðkvæmir í maga er þó ráðlagt að kaupa drykkjarvatn, í matvöruverslunum.
UMGENGNISREGLUR GISTISTAÐA
Ætlast er til að ró sé komin á kl. 24:00 og eru gestir vinsamlegast beðnir að taka tillit til þess. Aðrar mikilvægar reglur er að finna í hótelmóttöku og eru farþegar beðnir um að kynna sér þær. Farþegar sem brjóta þessar reglur eiga á hættu að vera vísað af gististaðnum.
ÚTIMARKAÐUR
Útimarkaður er einu sinni í viku í Torremolinos á fimmtudögum frá kl. 08:00-13:00, í Fuengirola á þriðjudögum kl: 08:00-13:00, og í Arroyo de la Miel sem er fyrir ofan Benal Beach hótelið á föstudögum frá kl 08:00-13:00
ÍSLENSKUR RÆÐISMAÐUR
Per Dover Petersen. .Sími:952-661-200. Opið frá 10-14 alla virka daga.
MATUR
Matur á Spáni er mjög góður, mikið úrval frábærra veitingastaða frá öllum heimshornum er að finna á Costa del Sol.
Óhætt er að mæla með eftirfarandi veitingastöðum:
· Shang-Hia - Kínverskur, rétt hjá Aguamarina.
· Lille Haven - Danskur , rétt hjá Aguamarina.
· Casa Juan - Fiskistaður í Carihuela.
· El Choza Der Pepe – Spænskur smáréttastaður, á Riu Mesa götu.
· DoÑa Francisquita - Glæsilegur veitingastaður í dýrari kantinum, í miðbæ Torremolinos.
· Roqueo – Einn besti fiskveitingastaðurinn í Carihuela þorpinu.
· Natura Sur – Pizzastaður rétt hjá Bajondillo
· Tex-MEX- Mexikanskur starður á snekkjubátahöfninni (ekki langt frá Timor Sol)
· Bahia – Creperia – Pueblo Planco við Casa Blanca ( fylltar pönnukökur bæði súrt og sætt)
· Mama Mia- Puerta Marina ítalskur veitingastaður fyrir aftan Pinocchio- MJÖG góður allt frá ítölskum mat – í flottar
steikur- flottur staður fyrir alla aldurshópa
OPNUNARTÍMI BANKA , PÓSTHÚSA OG APÓTEKA
Bankar eru opnir alla virka daga frá 09:00 - 14:00. ATH! BANKAR OPNA ALDREI SEINNI PART DAGS. Opnunartími pósthúsa er frá 09:00-14:00 mánud.-föstud. Lokað á laugardögum. Frímerki má kaupa í tóbaksbúðum og í flestum hótelmóttökum. Opnunartími apóteka er frá 9:00-13:00 og 16:30-20:00. Nætur og helgidagaþjónusta. Leigubílstjórar og starfsfólk í hótelmóttöku vita yfirleitt hvaða apótek er á vakt hverju sinni.
OPNUNARTÍMI VERSLANA
Verslanir eru opnar frá 10:00-13:30 og 16:30-20:00 mánud.-föstud. Flestar verslanir eru opnar fyrir hádegi á laugardögum en sumar hafa lokað eftir hádegi. ATH! OPNUNARTÍMI VERSLANA ER BREYTILEGUR.
ÞJÓRFÉ
Það tíðkast enn að gefa þjórfé á Spáni, þeir sem þess vænta eru þjónar á veitingastöðum, barþjónar, hárgreiðslumeistarar,
ræstingastúlkur á hóteli og bílstjórar í kynnisferðum. Vaninn er að gefa 5-10%, á veitingastöðum.
GOLF
Costa del Sol er paradís golfara. Hér er fjöldi golfvalla fyrir jafnt áhugamenn sem atvinnumenn. Torrequebrada golfvöllurinn er í Benalmadena, Mijas Golf er í 20 mínútna akstri frá Torremolinos, 2 mjög fallegir vellir og ekki erfiðir og í kringum Marbella er fjöldi fallegra valla sem eru spennandi viðfangsefni.
EKKI MISSA AF
· LA CARIHUELA. Fiskveitingastaðirnir við ströndina í Torremolinos. Veisla sem þú verður að kynnast.
· TÍVOLÍGARÐURINN. Frábær leiktæki við allra hæfi, veitingastaðir og skemmtiatriði.
· PUERTO MARINA smábátahöfn rétt hjá Timor Sol.
· DÝRAGARÐINUM Í FUENGIROLA
Kynnisferðir
Gíbraltar
Kletturinn á milli Spánar og Afríku. Undir yfirráðum Breta og hér er ensk menning að öllu leyti Þarna er fríhöfn og því hagstætt að versla tóbak og áfengi. Kynnisferð um klettinn og frjáls tími til að skoða sig um. Munið eftir vegabréfinu.
Verslunarferð
La Canada í Marbella ein stærsta verslunarmiðstöðin á Costa del Sol. En þarna eru fjölmargar búðir eins og H&M, Mango, Zara og FNAC (videoleikir ,tónlist og bækur)
Ævintýraferð fyrir alla
Hálfdagsferð m.a. er farið í Kastala, Fiðrildagarð og Buddah-musteri.
Mijas og Molino de la Paca
Hálfdagsferð. Einstaklega skemmtileg og létt ferð fyrir alla. Farið er í þorpið Mijas og í ólífolíuverksmiðjuna Molino de la Paca.
Marokkó
Dagsferð yfir til Afríku til að kynnast menningu sem er einstök og að mörgu leyti eins og að hverfa 300 ár aftur í tímann. Enskumælandi fararstjórn.
Sevilla
Frægasta borg Andalúsíu. Enskumælandi fararstjórn.
Granada
Ein frægasta borg Spánar þar sem Alhambrahöllin er staðsett. Enskumælandi fararstjórn.