Costa del Sol er tvímælalaust vinsælasti áfangastaður Íslendinga í sólinni, enda býður enginn annar áfangastaður á Spáni jafn glæsilegt úrval gististaða, veitingastaða og skemmtunar. Héðan er örstutt að skreppa yfir til Afríku og Gibraltar og töfrar Andalúsíu heilla alla þá sem henni kynnast en hér ertu í hjarta fegursta hluta Spánar í seilingarfjarlægð frá Granada, Sevilla og Cordoba, Jerez, Ronda og Cadiz.
Heimsferðir bjóða nú úrval gististaða, bæði í Torremolinos og í Benalmádena.
Frábær aðstaða fyrir ferðamanninn, einstakt loftslag og ótrúlegt úrval veitinga- og skemmtistaða. Ströndin hefur ár eftir ár verið valin hreinasta strönd Evrópu og fyrir þá sem vilja upplifa menningu, músík og fagra byggingarlist þá er Andalúsía sá staður Spánar sem hefur mest að bjóða.
Lengd flugs milli Íslands og Malaga: 4 1/2 klst.
Gjaldmiðill: Evra
Tungumál: Spænska
Tímamismunur: +2 klst.
Andalúsía - fegursti hluti Spánar
Heimsferðir bjóða farþegum sínum vinsælustu staðina við strönd Andalúsíu, Torremolinos, Benalmádena og Marbella, en þeir eiga það sameiginlegt að bjóða frábæra aðstöðu fyrir ferðamanninn, góða gistingu, hreinustu strendur Evrópu, glæsilegt úrval veitinga- og skemmtistaða og síðast en ekki síst einstakt andrúmsloft. Enginn hluti Spánar hefur jafn ríkt aðdráttarafl og Andalúsía, enda er hér að finna sterkustu sérkenni spænskrar menningar. Héðan er flamenkó-tónlistin upprunnin, matargerðin, nautaatið og byggingarlistin. Hér finnur þú hvítu þorpin, fegurstu strendur Spánar, nokkra frægustu golfvelli Evrópu, klaustur, hallir og kastala.
Torremolinos
Staður sem margir Íslendingar þekkja enda einn af vinsælustu stöðunum á Costa del sol. Hér er að finna glæsilegar strendur, vatnsrennibrautargarð, spennandi og fjörugt mannlíf, úrval veitingastaða, þar sem má meðal annars nefna vinsælu sjávarréttustaðina í La Carihuela og fjörugt skemmtanalíf, bæði við ströndina og í Gamla bænum.
Benalmádena
Benalmádena liggur við hliðina á Torremolinos. Hér er að finna fallegar strendur, spennandi mannlíf, úrval veitinga- og skemmtistaða, tívolí og síðast en ekki síst glæsilega snekkjubátahöfn Puerto Marina. Þangað ættu allir að fara og upplifa einstaka stemningu, hvort sem það er að fara út að borða á frábærum veitingastöðum, kíkja á fjörugt næturlífið eða skoða heillandi mannlífiið, glæsilegar snekkjur og margt annað sem snekkjubátahöfnin bíður uppá.
Marbella
Marbella er einn þekktasti lúxusdvalarstaður Evrópu, enda er hér að finna frábærar aðstæður fyrir ferðamanninn, sem leitar að mikilli þjónustu, topphótelum og frábæru úrvali veitinga- og skemmtistaða. Hingað sækja þeir sem vilja njóta besta aðbúnaðar sem völ er á í Evrópu. Marbella er þekkt fyrir gamla bæinn, sem er heillandi sambland gamalla húsa, þröngra andalúsískra stræta, veitingastaða, verslana og mannlífs sem einstakt í Evrópu, og hinnar frægu snekkjubátahafnar, Puerto Banús, þar sem glæsilegustu snekkjur heimsins liggja við akkeri yfir sumartímann.
Hér finnur þú glæsilega veitingastaði, hátískubúðir frá París, London, New York og Mílanó, glæsileg hótel, fallegar strendur, stærstu snekkjur heimsins og spennandi samansafn af heimsborgurum sem skapar andrúmsloft sem er bæði sérstætt og heillandi.