Netklúbbur

Endalausir afþreyingarmöguleikar


Frábær vatnsrennibrautagarður - Dedeman - Aquapark


Við Ortakent rétt utan Bodrum er hinn frábæri vatnsrennibrautargarður, Dedeman-Aquapark. Þar er leikur einn að eyða deginum í botnlausu fjöri frá morgni til kvölds. Fullt af skemmtilegum rennibrautum, sundlaugum, veitingastöðum og fleiru sem tilheyrir í fjörinu.

Nánar um vatnsrennibrautagarðinn hér!


 

Skútusiglingar

Mjög fjölbreyttir möguleikar eru til skútusiglinga á svæðinu í og við Bodrum. Mikill fjöldi eyja er út fyrir ströndinni, t.d. við Turgitreis og víðar og síðan eru fallegar grískar eyjar innan seilingar, s.s. hin fallega Kos.

Nánar um möguleikana hér!



 

Bodrum bærinn - dásamleg perla

Í Bodrum líða dagarnir hratt, enda nóg við að vera. Eftir dag á ströndinni er upplagt að líta inn í borgina í fjörið á næturlífinu - eða kíkja á veitingastað.
Auðvitað er síðan endalaust úrval verslana, fallegra staða sem áhugavert er að skoða, að ógleymdum fornminjum, söfnum og fleiru sem bærinn lumar á og má þar m.a. nefna kastalann tignarlega - sem er svo sannarlega heimsóknar virði.

Nánari upplýsingar um möguleikana í Bodrum hér (á ensku)


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur