Netklúbbur

Benidorm
- hvíta ströndin

alicante


Heimsferðir bjóða beint flug til Alicante í sumar eins og s.l. 20 ár. Alicantesvæðið er eitthvert vinsælasta orlofssvæði Íslendinga á erlendri grundu. Mikill fjöldi fólks á hér orlofshús og leggur leið sína hingað mjög reglulega.

Benidorm liggur í um klukkustundarakstri frá Alicante og hefur verið einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga í yfir 30 ár, enda er hér að finna eitt öruggasta veðurfar í Evrópu, sól og blíða í yfir 300 daga ár ári. Hingað sækja margir ár eftir ár til að njóta sumarleyfisins og sagt er að hvergi á Spáni sé ódýrara að njóta hins besta í sumarleyfinu en einmitt hér. Yndislegt er að rölta eftir strandgötunni eða um þröngar götur gamla bæjarins, fara í tapas eða rauðvínssmökkun eða skoða einhverjar af þeim fjölmörgu verslunum þar eru.

Á Benidorm er fjöldi frábærra veitingastaða, bæði í gamla bænum og við strandgötuna. Gamli bærinn hefur mikið aðdráttarafl. Síðdegis fyllast göturnar þar af fólki sem kemur til að sýna sig og sjá aðra.

Fjallaþorpin
alteaFjöldi fallegra smáþorpa er í nágrenni við Benidorm og þangað er skemmtilegt að skreppa á kvöldin til að kynnast mannlífinu undir berum himni. Fyrst ber að nefna Altea, með sínum fallegu götum og kirkjutorginu og útsýni yfir Benidorm. Þar selja listamenn handverksmuni fram á rauðanótt. Alfas de Pi, Guadalest, Calpe. Allt eru þetta staðir sem ómissandi er að heimsækja í fríinu.


Spennandi næturlíf
Á Benidorm er frábært úrval skemmtistaða fyrir þá sem vilja stunda næturlífið. Við strandgötuna eru fjölmargir skemmtilegir staðir sem eru opnir fram undir morgun og fyrir ofan miðbæinn er að finna mörg glæsileg diskótek sem byrja að fyllast upp úr miðnætti.


Alicante eða Valencia
Borgin Valencia er ein sú framsæknasta í Evrópu í dag og spennandi heim að sækja. Hún er þriðja stærsta borg Spánar með 800 þúsund íbúa, fræg fyrir sína fögru appelsínulundi, næturlíf, gamla bæinn, paellu, Valenciakokteilinn, keramiklist, vefnaðarvöru og húsgagnagerð. Þar finnur þú heillandi gamlan borgarhluta, sem iðar af mannlífi, dómkirkjur, veitingastaði og frábæra strönd.
Alicante þekkja fleiri en hún er höfuðborg héraðsins sem Benidorm tilheyrir. Gullfalleg gömul spænsk borg, með heillandi miðbæ, veitingahúsum, verslunum og fallegri höfn.


Terra Mitica
aqualandia-beni_240x160Einn glæsilegasti skemmtigarður Evrópu er nú risinn fyrir ofan Benidorm. Garðurinn skiptist í 5 svæði, sem hvert og eitt tilheyrir sögu og menningarheimi ákveðins lands. Egyptaland og heimur faraóanna, Grikkland og hofin, Rómarveldi, eyjarnar og Iberia. Ómissandi er að njóta eins dags í þessum ævintýraheimi. Rútuferðir allan daginn frá Benidorm.

Lengd flugs milli Íslands og Alicante: 4 klst.     
Gjaldmiðill: Evra
Tungumál: Spænska
Tímamismunur: +2 klst.


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur