Netklúbbur

Alicante

Alicante sumarið 2013
Verð frá kr. 19.900 - önnur leiðin með sköttum.

aqualandia-beni_240x160Vinsældir Alicante svæðisins hafa vaxið ár frá ári enda fara ferðamenn þangað aftur og aftur til að njóta alls þess sem það hefur að bjóða. Hér er að finna eitt stöðugasta veðurfar á Spáni, sól alla daga og hitinn er milli 25-30 gráður yfir sumartímann.

Heimsferðir bjóða flugsæti til Alicante frá apríl og fram í október.


Alicante & Valencia
Alicante
borgina þekkja margir Íslendingar en hún er höfuðborg héraðsins. Gullfalleg gömul spænsk borg, með heillandi miðbæ, veitingahúsum, verslunum og fallegri höfn.
Borgin Valencia er ein sú framsæknasta í Evrópu í dag og spennandi heim að sækja. Hún er þriðja stærsta borg Spánar með 800 þúsund íbúa, fræg fyrir sína fögru appelsínulundi, næturlíf, gamla bæinn, paellu, Valenciakokteilinn, keramiklist, vefnaðarvöru og húsgagnagerð. Þar finnur þú heillandi gamlan borgarhluta, sem iðar af mannlífi, dómkirkjur, veitingastaði og frábæra strönd.

Terra Mitica
Einn glæsilegasti skemmtigarður Evrópu er nú risinn fyrir ofan Benidorm um klukkutíma akstur frá Alicante. Garðurinn skiptist í 5 svæði, sem hvert og eitt tilheyrir sögu og menningarheimi ákveðins lands. Egyptaland og heimur faraóanna, Grikkland og hofin, Rómarveldi, eyjarnar og Iberia. Ómissandi er að njóta eins dags í þessum ævintýraheimi.

Lengd flugs milli Íslands og Alicante: 4 klst.     
Gjaldmiðill: Evra
Tungumál: Spænska
Tímamismunur: +2 klst.


Primera Air
primera-aircraftPrimera Air mun annast þessi leiguflug fyrir Heimsferðir á Íslandi eins og fyrir önnur dótturfyrirtæki Primera Travel Group í Skandinavíu. Þjónusta um borð er fyrsta flokks og að sjálfsögðu á íslensku.
Sjá nánari upplýsingar um flugfélagið


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur