Netklúbbur


Töfrar Karíbahafsins með Costa Atlantica

6. – 21. mars 2012 
 
costa_atlantica_240x160

Karíbahafið er heillandi heimur og dásamlegt að sigla á vit ævintýranna með glæsilegu skipi og kanna töfra eyjanna sem heimsóttar verða því hver og ein er einstök  með sín sérkenni og skemmtilega mannlíf sem svo gaman er að kynnast. Siglt er með glæsiskipinu Costa Atlantica, 4 stjörnu skip með fullu fæði og daglegri afþreyingar- og skemmtidagskrá. Fræðandi og skemmtilegar kynnisferðir eru í boði á hverjum áfangastað. 
 
Ferðin hefst á flugi til Orlando þar sem gist verður í tvær nætur á Hótel Florida Mall. Þann 8. mars er ekið frá Orlando til Miami sem er um 6 tíma akstur. Þaðan hefst 10 daga sigling um Karíbahafið þar sem við heimsækjum nýja og spennandi áfangastaði nánast á hverjum degi  - en einnig gefst tækifæri til að njóta lífsins um borð.  Þeir staðir sem siglt verður til eru Bahamaeyjar, Grand Turks, Jamaica, Cayman Islands, Roatan í Hondúras og Cozumel.  Í lok siglingar er ekið til Fort Lauderdale  og dvalið þar í 3 nætur áður en ekið er til Orlando og flogið er til Íslands að kvöldi 21. mars.    

Ferðatilhögun:

6. mars
Flug til Sanford flugvallar sem er um 30 km fyrir norðaustan Orlando borg. Brottför kl 17:25, lending kl 20:20.  Ekið frá flguvelli á hótel.

6. – 8. mars        Dvalið í Orlando.
florida-mall-hotelFlorida Mall hotel * * * *
1500 Sand Lake Road Orlando.      Sími: 001-407 859 1500
Hótelið er í einni stærstu verslunarmiðstöð Orlando Florida Mall. Á hótelinu eru 496  falleg herbergi, veitingastaður,  “Starbucks   Cafe”  kaffihúsið, sundlaug og líkamsræktarstöð. Herbergin eru loftkæld með sjónvarpi, síma, öryggishólfi, ísskáp, kaffiáhöldum og straujárni. Morgunverður er ekki innifalinn í verði.
  


8. mars
Brottför frá Orlando er klukkan 9:00.
Ekið frá Orlando til Miami. Tekur sá akstur  tæplega 6 tíma. Innritun á skipið hefst kl 14:00.  Og þar með hefst sannkölluð ævintýrasigling um Karíbahafið. 
  
atlantica2_240x160Sigling  8. – 18. mars 2012

Þriðjudagur Miami Flórída  Brottför: 21:00
Miðvikudagur Nassau Bahamaeyjar Koma: 9:00 Brottför: 18:00
Fimmtudagur Sigling     
Föstudagur Grand Turks Turks eyjar Koma: 8:00 Brottför: 14:00
Laugardagur Ocho Rios Jamaica    Koma: 12:00 Brottför: 19:00
Sunnudagur Grand Cayman Cayman eyjar Koma: 9:00    Brottför: 18:00
Mánudagur  Sigling     
Þriðjudagur Roatan Hondúras Koma 8:00 Brottför: 19:00
Miðvikudagur Cozumel Mexico Koma: 8:00 Brottför: 19:00
Fimmtudagur Sigling   
Föstudagur Miami Flórída Koma: 8:00 Siglingu lýkur

18. mars
 Ekið frá Miami til Fort Lauderdal. Þar er dvalið  í 3 nætur á góðu hóteli skammt frá ströndinni.
 
21. mars
Ekið frá Fort Lauderdale  til Sanford flugvallar.  Flugtak frá Sanford flugvelli kl 18:00 og lending á Keflavíkurflugvelli kl 06:10 að morgni 22. mars.
 
Verð kr.
  344.900 á mann í tvíbýli í klefa án glugga.
  382.900  á mann  í tvíbýli í klefa með glugga 
  417.900 á mann í tvíbýli í klefa með svölum
  481.200 á mann í einbýli í klefa án glugga ( sérpöntun hverju sinni )

Innifalið: Flug, skattar, gisting á 4* hóteli í 2 nætur í Orlando og 3 nætur í Fort Lauderdale. 10 daga sigling      með fullu fæði, akstur til og frá flugvelli og til og frá skipi. Hafnargjöld og íslenskur fararstjóri með miðað við lágmarks þátttöku 20 manns.  

Ekki innifalið:   Kynnisferðir og annað sem ekki er tilgreint að ofan.   Þjórfé um borð í skipi. Bókunargjald á   skrifstofu eða hjá umboðsmönnum er kr. 2.400 á mann.   Staðfestingargjald er kr. 80.000. Lágmarksþátttaka er 20 manns


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur