Sigling um Miðjarðarhafið og sæludagar á Benidorm
19. september - 3. október 2012
Sigling með glæsilegu skemmtiferða skipi er afar vinsælli ferðamáti og þeir sem hafa einu sinni farið í siglingu kjósa að endurtaka það á ný. Fjölmargar siglingar eru í boði – allar spennandi hver á sinn hátt. Í þessari siglingu um Miðjarðarhafið er siglt með glæsiskipinu Costa SERENA sem sjósett var árið 2007. 5 stjörnu lúxusskip með fullu fæði og daglegri afþreyingar- og skemmtidagskrá. Þar er meðal annars “Samsara Spa” sem er ein stærsta og glæsilegasta heilsulind um borð í skemmtiferðaskipi í dag. Fræðandi og skemmtilegar kynnisferðir eru í boði á hverjum áfangastað.
Ferðin hefst á flugi til Alicante. Frá Alicante er ekið til Benidorm og dvalið þar á 4* hóteli með öllu inniföldu í 2 nætur. Þann 21. september er ekið frá Benidorm til Valencia þaðan sem Costa Serena siglir. Og þar með hefst dásamlega sjö daga sigling um Miðjarðarhafið þar sem við heimsækjum nýjan og spennandi áfangastað á hverjum degi. Þeir staðir sem siglt verður til eru Marseille í Frakklandi, Savona og Civitavecchia/Róm á Ítalíu, Palermo á Sikiley og Palma á Mallorca. Að lokum er siglt til Valencia á ný þar sem siglingunni lýkur. Frá Valencia er ekið til sólskyns staðarins Benidorm sem ávallt hefur verið mikið eftirlæti Íslendinga. Þar verður dvalið á góðu 4* hóteli með öllu inniföldu í 5 sæludaga – sannarlega góður endir á skemmtilegri ferð. Frá Benidorm er ekið til Alicante og fogið til Íslands.
Costa SERENA
Sjósett í júlí 2007 * Lengd 290 metrar * Breidd 36 metrar * 114.500 tonn * Hraði 21,5 hnútar * Fjöldi klefa 1500 * Hæðir 13 *Fjöldi farþega 3700 * Fjöldi starfsfólks 1100 * 4 sundlaugar * 5 nuddpottar * Barnalaug * Leikherbergi barna * Heilsulind * Hárgreiðslustofa * Glæsileg líkamsræktaraðstaða * Hlaupabraut * Netkaffi * Bókaherbergi * Spilaherbergi * Setustofur * Leiksvið * Spilavíti * Diskótek * Næturklúbbur * 13 barir * Koníaks og vindlastofa * Kaffibarir * Súkkulaðibar * 5 veitingastaðri * Kaffitería * Verslanir * “Grand Prix “ hermir * 15 lyftur * Allir klefar loftkældir * Öryggishólf í klefa
19. september
Flogið í beinu leiguflugi Heimsferða til Alicante. Dvalið á ströndinni á Benidorm í tvær nætur.
Benidorm hefur verið einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga í yfir 30 ár, enda er hér að finna eitt öruggasta veðurfar í Evrópu, sól og blíða í yfir 300 daga ár ári. Hingað sækja margir ár eftir ár til að njóta lífsins í veðurblíðunni og við aðstæður eins og þær gerast bestar. Það er notalegt að rölta eftir strandgötunni, bregða sér á kaffihús, sýna snilli sína í minigolfi eða fara á útimarkaðinn sem er haldinn á hverjum miðviku- og laugardegi. Á Benidorm er fjöldi frábærra veitingastaða, bæði í gamla bænum og við strandgötuna og þar eru skemmtistaðir með lifandi tónlist sem ómar langt fram á kvöld. Gamli bærinn er heillandi og hefur mikið aðdráttarafl þar kemur fólk saman til að sýna sig og sjá aðra.
Gist verður á Hotel Levante Club**** með ÖLLU INNIFÖLDU.
21. september
Ekið til hafnar i Valencia, og þar með hefst dásamleg 7 daga sigling um Miðjarðarhafið.
Sigling 21. – 28. september
| Föstudagur | Valencia | Spánn | Brottför:18:00 | |
| Laugardagur | Marseille | Frakkland | Koma:14:00 | Brottför:17:00 |
| Sunnudagur | Savona | Ítalía | Koma:08:00 | Brottför:17:00 |
| Mánudagur | Civitavecchia | Ítalía | Koma:08:00 | Brottför:17:00 |
| Þriðjudagur | Palermo | Sikiley | Koma:12:00 | Brottför:17:00 |
| Miðvikudagur | Sigling | |||
| Fimmtudagur | Palma | Mallorca | Koma:08:00 | Brottför:18:00 |
| Föstudagur | Valencia | Spánn | Koma:08:00 | Siglingu lýkur |
28. september
Komið til Valencia að morgni til. Ekið til Benidorm tekur um tveggja tíma akstur. Á Benidorm er dvalið á góðu 4* hóteli með öllu inniföldu í 5 nætur.
Hotel Levante Club****
Av. Severo Ochoa, 3-B N. Rincón de Loiz Av. Severo Ochoa, 3-B, Benidorm Sími: 0034 966 830 000
www.hotellevanteclub.com
Glæsilegt fjögurra stjörnu hótel með góða staðsetningu á Benidorm. Björt og rúmgóð herbergi sem rúmast fyrir allt að 4, 2 fullorðna og 2 börn eða 3 fullorðna. Internettenging er á herbergjum. Fullkomin Spa og líkamsræktaraðstaða er á staðnum. Barir og flott veitingaaðstaða er á hótelinu þannig að þó þú sért í hjarta iðandi mannlífs á Benidorm ertu með alla þjónustu.Öll þægindi eru til staðar og er hótelið annað hvort með hálfu fæði eða allt innifalið
3. október Heimferð.
Flug frá Alicante til Keflavíkur. Flugtímar liggja ekki fyrir eins og er.
Netverð á mann.
277.900 á mann í tvíbýli í klefa án glugga.
316.900 á mann í tvíbýli í klefa með glugga.
336.900 á mann í tvíbýli í klefa með svölum
Innifalið: Flug, skattar, gisting á 4* hóteli með ÖLLU INNIFÖLDU í 7 nætur á Alicante. Vikusigling með fullu fæði, hafnargjöld og akstur til og frá flugvelli og til og frá skipi. Íslenskur fararstjóri á Benidorm. Ekki íslenskur fararstjóri á skipinu. Engin lágmarksþátttaka.
Ekki innifalið: Kynnisferðir og annað sem ekki er tilgreint að ofan. Þjórfé um borð í skipi. Bókunargjald á
skrifstofu eða hjá umboðsmönnum er kr. 2.400 á mann. Staðfestingargjald er kr. 50.000.