Netklúbbur

Costa Fortuna

Glæsisigling frá Karíbahafi til Evrópu
3.- 26. apríl  2012 ( páskar )

Orlando – Miami – Grand Turks – Tortola –  St. Maarten – Antigua – 6 daga sigling - Madeira – Malaga – Savona – San Remo

2 sæti laus vegna forfalla !

Sigling er afar þægilegur og einstaklega skemmtilegur ferðamáti.  Það er sem draumi líkast að heimsækja og kynnast nýjum og spennandi áfangastað nánast á hverjum degi –  án þess að þurfa að skipta um gististað.  Þægilegra getur það varla verið. Skipið Costa Atlantica er í eigu ítalska skipafélagsins Costa Cruises. Glæsileg aðstaða og aðbúnaður er á skipinu. Skemmtilegar og fræðandi kynnisferðir í boði frá hverjum áfangastað.

costa_atlantica_240x160 tortola

Glæsisigling með Costa Atlantica er einstaklega áhugaverð 16 daga sigling þar sem heimsóttar eru nokkrar þekktustu perlur Karíba- og Miðjarðarhafsins. Einnig fá  farþegar góðan tíma að njóta þess að sigla frá Karíbahafi til Evrópu með lúxusskipinu Costa Atlantica. Ferðin hefst á flugi til Orlando þar sem dvalið verður í 4 nætur. Frá Orlando er síðan ekið til Miami á Flórída en þaðan siglir skipið. Þar með hefst sannkölluð draumasigling um Karíbahafið þar við heimsækjum eyjarnar:  Grand Turks, Tortola, St. Maarten og Antigua allt einstakar perlur hver og ein með sín sérkenni og skemmtilega mannlíf sem gaman er að kynnast. Þegar Karíbahafið er yfirgefið er siglt yfir Atlandshafið til Evrópu. Tekur sú sigling 6 daga.  Á meðan gefst gott tækifæri að njóta lífsins um borð og alls hins besta  sem boðið eru uppá í formi skemmtanna og veislumáltíða frá morgni til kvölds. Þegar til Evrópu er komið eru spennandi áfangastaðir framundan. Við heimsækum  Madeira blómaeyjuna í Atlantshafinu   og skoðum okkur um á Malaga á suðurströnd Spánar. Þá tekur við dagssigling áður en komið er til Savona á Ítalíu. Þaðan er ekið til San Remo - blómabæjarins á ítölsku riveríunni Þar er dvalið í 3 nætur. Þann 26 apríl  er ekið til Nice, þaðan er flogið til Íslands með millilendingu í London.

3. apríl
Flug með Flugleiðum til Sanford flugvallar á Flórída. Flugtak kl 17:10, lending kl 20:55 að staðartíma. Flugvöllurinn er 29 km fyrir norðaustan Orlando. Ekið á Hótel Florida Mall.

3. – 7. apríl
Dvalið á Hótel Flórída Mall í Orlando.
florida-mall-hotel  florida-mall-hotel_herbergi
Florida Mall hotel * * * *
1500 Sand Lake Road Orlando.      Sími: 001-407 859 1500    www.thefloridamallhotel.com
Gott hótel sem staðsett er í einni stærstu verslunarmiðstöð Orlando Florida Mall.  Á hótelinu eru 496  falleg herbergi, veitingastaður,  “Starbucks Cafe” –  kaffihúsið, sundlaug og líkamsræktarstöð. Herbergin eru loftkæld með sjónvarpi, síma, öryggishólfi, ísskáp, kaffiáhöldum og straujárni. Ekkert fæði innifalið.

7. apríl
Ekið frá Orlando til Miami. Tekur sá akstur um 6 tíma. Innritun á skipið hefst kl 17:00. Og þar með hefst sannkölluð draumasigling um Karíba– Atlants- og Miðjarðarhaf.

7. – 12. apríl
Siglt um Karíbahafið  þar við heimsækjum eyjarnar: Grand Turks, Tortola, St. Maarten og Antigua  allt einstakar eyjar hver  og ein með sín sérkenni og skemmtilega mannlíf sem svo gaman er að kynnast.  Costa Cruises býður uppá fjölbreyttar kynnisferðir á öllum viðkomustöðum. 

13. – 23. apríl
Þegar Karíbahafið er yfirgefið er siglt yfir Atlandshafið til Evrópu. Tekur sú sigling 6 daga.  Á meðan gefst gott tækifæri að njóta lífsins um borð og alls hins besta  sem boðið eru uppá í formi skemmtanna og veislumáltíða frá morgni  til kvölds. Þegar til Evrópu er komið eru tveir spennandi áfangastaðir heimsóttir, blómaeyjan Madeira og Malaga á suðurströnd Spánar.  Þá tekur við dagssigling áður en komið er til Savona á Ítalíu. Þaðan er er ekið í vesturátt meðfram ströndinni til San Remo sem er lítill fallegur bærinn  á ítölsku ríveríunni, rúmlega klukkutíma akstur frá Savona. Bærinn oft nefndur blómabærinn og stendur  fyllilega undir því nafni.  Þar er dvalið í 3 nætur. Þann 26 apríl  er ekið til Nice, þaðan er flogið til Íslands með millilendingu í London.

madeira san-remo

7.   – 23. apríl    Sigling með  COSTA  Atlantica.  Fullt fæði innifalið.

 7. apríl  Miami  Florida  Innritun: 17:00  Brottför: 21:00
 8. apríl  Sigling  Karíbahafið    
 9. apríl  Grand Turks  Turkseyjar  Koma: 08:00   Brottför: 14:00
 10. apríl  Tortola  Bresku jómfrúar  Koma: 13:00   Brottför: 19:00
 11. apríl  St. Maarten  Leewards eyjar  Koma: 08:00   Brottför: 19:00
 12.apríl  Antigua/
St.John´s
 Leewards eyjar  Koma: 08:00   Brottför: 18:00
 13. - 18. apríl  Sigling  Til Evrópu     
 19. apríl  Funchal  Madeira  Koma: 08:00   Brottför: 17:00
 20. apríl  Sigling  Atlantshafið     
 21. apríl  Malaga  Spánn  Koma: 08:00   Brottför: 13:00
 22. apríl  Sigling  Miðjarðarhafið    
 23. apríl  Savona  Ítalía  Koma: 09:00   Siglingur lýkur

Costa Atlantica * * * *
costa_atlantica_188x75
Sjósett:   Júlí 2000  *  Lengd: 292 metrar  *  Breidd: 32 metrar *  8600 tonn  *   hæðir 12  *fjöldi farþega:  2680  *  fjöldi starfsfólks:  920 *  3 sundlaugar *  4 nuddpottar  *  barnalaug *  leikherbergi barna * heilsurækt  *  hárgreiðslustofa  *  líkamsræktar herbergi *  netkaffi  *  bókaherbergi  *  spilaherbergi  * setustofur * leiksvið * næturklúbbur *  kaffitería * verslanir * 15 lyftur * allir klefar loftkældir * öryggishólf í klefa. 

23. – 26. apríl
Dvalið í San Remo á Ítalíu.

26. apríl
Ekið til Nice og flogið til London um eftirmiðdaginn. Kvöldflug frá London til Keflavíkur

Netverð á mann:
Kr. 386.700 á mann í tvíbýli í klefa án glugga.
Kr. 42.400  aukagjald á mann í tvíbýli  fyrir klefa með glugga.
Kr. 79.800  aukagjald á mann í tvíbýli  fyrir klefa með svölum.
Kr. 138.200  aukagjald fyrir einbýli í klefa án glugga
 

Innifalið: Flug, gisting í 4 nætur í Orlando / án fæðis, 16 nátta sigling með fullu fæði, 3 nætur  í San Remo  með morgunverði, akstur til og frá flugvelli erlendis og milli Orlando og Miami. Íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns. Flugvallarskattar og hafnargjöld.
 
Ekki innifalið: Valfrjálsar kynnisferðir, aðgangseyrir á söfn, fæði og annað sem ekki er tilgreint að ofan. Þjórfé um borð í skipi er um  ERU 6.- á mann á dag.

Bókunargjald á skrifstofu eða hjá umboðsmönnum er 2.400.- á mann. 

Staðfestingargjald er 80.000.- á mann.

Lágmarksþátttaka með íslenskum fararstjóra er 20 manns.


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur