Netklúbbur

Costa Concordia

Gersemar Miðjarðarhafsins


Gersemar Miðjarðarhafsins

Gersemar Miðjarðarhafsins og Rómarborgar

13. október - 29. október

Civitavecchia – Savona – Katakolon/Olympia – Haifa/Ísrael – Ashdod/ísrael – Izmir-  Piraeus/Aþena - Róm

rom_240x160Lúxussiglingar eru einstaklega þægilegur ferðamáti og afar spennandi að heimsækja nýtt land og upplifa nýja menningu á hverjum degi. Glæsiskipið Costa Pacifica er eitt af nýjustu skipum Costa Cruises sjósett í júlí  2009. Afar glæsilegt 5 stjörnu skip  með daglegri afþreyingar- og skemmtidagskrá og veislu í öllum aðbúnaði ásamt mat og drykk. Siglingin um gersemar Miðjarðarhafsins hefst á flugi til Rómar með millilendingu í London.  Frá Róm  er ekið í norðurátt til hafnarborgarinnar Civitavecchia og dvalið þar í eina nótt. Þann 14. október hefst stórkostleg 11 daga sigling um austurhluta Miðjarðarhafsins þar sem við skoðum gersemar og fornar minjar Grikklands, Tyrklands og helgar borgir í  Ísrael.  Viðkomustaðirnir í siglingunni eru Savona við Genovaflóann. Þá tekur við dagssigling áður en komið er til Katakolon / Olympia á Grikklandi. Þaðan er siglt til Ísrael og komið til Haifa sem er stærsta hafnarborg Ísrael  byggð á gömlum merg  en borgarinnar er getið bæði í gamla og nýja Testamentinu. Borgin stendur undir norðurhlíðum Karmelfjallana við skjólgóða Akkovíkina. Frá Haifa eru kynnisferðir til hinna helgu borga Jerúsalem og Betlehem.  Ashdod í Ísrael er næsti áfangastaður. Þetta er lítil hafnarborg við Miðjarðarhafið og sívaxandri ferðamannastaður. Kynnisferðir um borgina og næsta nágrenni hennar.  Þá tekur við dagssigling áður en komið er til  Izmir sem er þriðja stærsta borg Tyrklands og mikilvæg hafnarborg. Skammt frá borginni er hina forna borg Efsus sem er eitt best varðveitta fornleifasvæði heims. Boðið uppá kynnisferð þangað. Þá er siglt til til Piraeus hafnarborgar Aþenu í Grikklandi. Að lokum er dagssigling til Civitavecchia þar sem siglingunni lýkur Þaðan er ekið til Rómar og dvalið í þessari dásamlegu borg í  4 nætur.  Fræðandi og skemmtilegar kynnisferðir eru í boði á hverjum áfangastað   Þann 29. október er flogið frá Róm til Íslands með millilendingu í London.  

Ferðatilhögun

13. október
Flug með Icelandair til London og þaðan til Rómar. Komutími til  Rómar kl  19:10. Ekið til Civitavecchia. Um 60 km.   Gist á góðu 3* hóteli í miðbænum.

14. – 25 október      
Ekið til hafnar í Civitavecchia. Costa Pacifica siglir kl  19:00.   Innritun í skipið hefst um kl 15:00.

Siglingin með Costa Pacifica

14. október  Civitavecchia/Róm Ítalia  Brottför: 19:00
15. október  Savona Ítalía Koma: 9:00 Brottför: 17:00
16. október Á siglingu     
17. október Katakolon/Olympia Grikkland Koma:13:00 Brottför: 18:00
18. október Á siglingu     
19. október Ashdod Ísrael Koma: 9:00 Brottför: 21:00
20. október Haifa Israel Koma: 8:00 Brottför: 20:00
21. október Á siglingu     
22. október Izmir Tyrkland Koma: 8:00 Brottför: 18:00
23. október Piraeus/Aþena Grikkland Koma: 8:00 Brottför: 17:00
24. október Á siglingu                             
25. október Civitavecchia/Róm Ítalía Koma: 8:00 Siglingu lýkur

costa-pacifica_320x145

Costa Pacifica
Sjósett:  2009  *  Lengd: 290 metrar  *  Breidd: 35,5 metrar *  114.500 tonn  *   hæðir 13  *fjöldi farþega:  3780  *  fjöldi starfsfólks:  1110 *  4 sundlaugar *  5 nuddpottar  *  barnalaug *  leikherbergi barna * heilsurækt  *  hárgreiðslustofa  *  líkamsræktar herbergi *  hlaupabraut * netkaffi  *  bókaherbergi  *  spilaherbergi  * Grand prix hermir * upptökustudió * Play station world * setustofur * leiksvið * næturklúbbur *  kaffitería * verslanir * 14 lyftur * allir klefar loftkældir * öryggishólf í klefa.
 
25. október
colosseum1_240x160Ekið frá Civitavecchia til Rómar. Rúmlega klukkutíma akstur. Gisting í Róm í 4 nætur. Njótum þess að dvelja í þessari stórkostlegu borg.  Skoðum byggingar og meistaraverk endurreisnartímans, barokkkirkjur, torgin í Róm, Spænsku tröppurnar, litríkt mannlífið á Piazza Novona og við hinn fræga Trevi brunn.

26. október
Hálfsdags kynnisferð um forna sögustaði Rómar,  Forum Romanum, Colosseum, Panþeon hofið,  Minervu kirkjan og fleiri sögufrægar byggingar í nágrenninu. Skoðum Trevi brunninn og hin skemmtilegu torg borgarinnar. Við endum ferðina í miðbænum.
 
27. október
Hálfsdags ferð í Vatíkanið þar sem við skoðum Vatikansafnið og veggmyndir Rafaels, Sixtínsku kapelluna með veggmálverkum Michelangelos, Péturskirkjuna og Péturstorgið. Við endum ferðina við Spænsku tröppurnar. Þar eru veitinga- og kaffihús  á hverju strái og glæsilegar sérverslanir.

28. október
Frjáls dagur í Róm.

29. október
Um hádegisbil er ekið út á flugvöll. Flugtak kl 15:00. Lending í London kl 16:45. Flogið með Icelandair til Íslands kl 20:35 og lent á Keflavík kl 23: 35

Netverð á mann
378.900  á mann í tvíbýli í klefa án glugga.
417.900  á mann í tvíbýli í klefa með glugga
437.900  á mann í tvíbýli í klefa með svölum
519.300  á mann í einbýli  í klefa án  glugga

Innifalið: Flug, skattar, gisting á 3 * hóteli í Civitavecchia í 1 nótt / 4* hótel  í 4 nætur í Róm  nætur. Morgunverður innifalinn.  11 daga sigling með  fullu fæði og hafnargjöldum.  Akstur samkvæmt leiðarlýsingu og  íslensk fararstjórn miðað við lágmarks þátttöku 20 manns.  
 
Ekki innifalið: Kynnisferðir á skipi og í Róm. Annað sem ekki er tilgreint að ofan. Þjórfé um borð í skipi. Bókunargjald á skrifstofu eða hjá umboðsmönnum er kr. 2.400 á mann.

Staðfestingargjald er kr. 50.000.           Lágmarksþátttaka er 20 manns.


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur