Netklúbbur

Tyrkland og grískar perlur


Tyrkland og grískar perlur

Tyrkland og grískar perlur
Bodrum – Kos – Marmaris – Rhodos – Pamukkale

4. – 14.  september  2012

bodrum_kastali_240x180Fararstjóri Ólafur Gíslason

Einstök ferð um um suðvestur strönd Tyrklands ásamt dagsferðum  til grísku eyjanna Kos og Rhodos. Ferðin hefst á flugi til Bodrum.  Dvalið í Gumbet í 4 nætur. Á fimmta degi er ekið Marmaris og dvalið þar í 5 nætur. Í lok ferðar er dvalið í Pamukkale í 1 nótt.  Suðurströnd Tyrklands er vogskorin með litlum víkum og vogum þar sem ilvolgur sandurinn gælir við túrkislitaðann sjóinn og kallast á við skógivaxnar hlíðar svo langt sem augað eygir. Litríkir bæjir og lítil þorp standa meðfram ströndinni eða  kúra  í hlíðunum fyrir ofan. Fornminjar og fornar borgir eru víða og munu verða hluti af því sem skoðað verður í ferðinni. Stórar og smáar snekkjubátahafnar setja svip sinn á landslagið en þar má sjá allt frá litlum  skonnortum vaggandi í flæðamálinu til seglskútna og glæsilegra lystisnekkja.

4. september
Flugtak frá Keflavík kl 20:30.  Mæting á Keflavíkurflugvelli 2 tímum fyrir brottför. Komutími til Bodrum kl 05:30 að staðartíma að morgni 5. september. Þriggja tíma munur. Ekið frá flugvelli til Gumbet / Bodrum. Vegalengdin er um 40 km. Klukkutíma akstur. Gisting í Gumbet / Bodrum  í 4 nætur.

5. september
Kynnisferð um Bodrum. Ekið niður að höfninnni og gamla bænum. Þá er léttur göngutúr um gamla miðbæinn þar sem við skoðum smábátahöfnina og Bodrum kastalann sem setur svo sterkan svip sinn á bæinn. Þar er nú afar merkilegt sædýarsafn
Gisting með öllu inniföldu í Gumbet / Bodrum.

kos_island6. september
Dagsferð til grísku eyjunnar Kos sem er skammt undan landi. Það tekur um 50 mín að sigla yfir til Kos. Fararstjóri gengur með farþegum um Kos bæinn og sýnir þeim það markverðasta þar, meðal annars tré Hippocratesar föður læknavísindanna.  Á Kos er þjónustan fyrir ferðmenn fyrsta floks og eyjaskeggjar rómaðir fyrir gestrisni sína og taka vel á móti ferðamanninum.  Hjarta eyjunnar er í  Kos bænum og þar er til dæmis hægt að fara í hálf tíma lestarferð um bæinn, leigja sér hjól og halda á vit ævintýranna –  eða einfaldlega rölta um göngugöturnar í miðbænum þar sem mannlífið er litríkt og líflegt. Fjöldi veitingahúsa, kaffihúsa og litlar skemmtilegar verslanir verða á vegi okkar. Haldið til baka til Bodrum um eftirmiðdaginn. 
Gisting með öllu inniföldu í Gumbet / Bodrum

7. september
Frjáls dagur í Bodrum. Tækifæri að skoða sig betur um í Bodrum eða bregða sér í siglingu þar sem siglt er meðfram ströndinni og stoppað á völdum stöðum. Á sumum stöðum gefst tækifæri til að fá sér sundsprett.  Þessi sigling er ekki innifalin í verð.  Bókað og greitt hjá fararstjóra. 
Gisting með öllu inniföldu í Gumbet / Bodrum

8. september
Eftir morgunverð er ekið frá Bodrum til Marmaris. Um 2ja tíma akstur. Frjáls eftirmiðdagur.
Um kvöldið er kvöldferð á skemmtistað með tyrkneskum mat og margvíslegri skemmtun.
Gisting með öllu inniföldu í Marmaris

marmaris_hofn9. september
Marmaris er fallegur og líflegur strandbær. Hjarta Marmaris er snekkjuhöfnin en þar æir saman litlum skonnortum, seglskútum svo og glæsilegum lystisnekkjum auk úrvali veitingastaða, kaffihúsa og verslanna. Kynnisferð um Marmaris. Skoðum snekkjubátahöfnina, miðbæinn og kastalann. Einnig gefst tækifæri að skoða vöruúrvalið á markaði staðarins og þar má oft á tíðum gera góð kaup. Gisting með öllu inniföldu í Marmaris.

10. september
Dagsferð til Dalyan og Fethiye. Ekið frá Marmaris til Dalyan tæplega 2ja tíma akstur.  Dalyan er fallegur og friðsæll fiskimannabær.  Skoðum bæinn og fornar konunglegar grafir sem höggnar voru í klett fyrir um 2500 árum síðan.  Fjölbreytt fuglalíf, svo og griðland fyrir skjaldbökur. Þá er farið í notalegt leirbað – sem á víst að yngja þá sem það stunda um a.m.k 10 ár! – spurning hvort að eitt skipti dugi til.   Eftir hádegisverð er tími til að njóta strandlífsins á Iztuzu ströndinni með drifhvítum sandi.  Um eftirmiðdaginn er ekið til Fethiye. Bærinn  stendur við sæblánn kristaltærann sjóinn með Taurus fjöllin gnæfandi hátt í bakgrunni.  Stoppað við Bláa lónið sem er einstaklega fallegur staður. Þá skoðum við fornminjar í Kayaköy þorpinu sem var undir grískri stjórn á 15 öld. Þar má enna sjá rústir húsa, verslanna og kirkju staðarins. Ekið til Marmaris en þangað er um klukkutíma akstur.  Gisting með öllu inniföldu í Marmaris

11. september
Frjáls dagur í Marmaris. Tækifæri að skoða sig betur um bænum  eða bregða sér í siglingu þar sem siglt er meðfram ströndinni og stoppað á völdum stöðum. Á sumum stöðum gefst tækifæri til að fá sér sundsprett.  Þessi sigling er ekki innifalin í verð.  Bókað og greitt hjá fararstjóra.  Gisting með öllu inniföldu í Marmaris.

12. september
Dagsferð til Rhodos. Það tekur aðeins um 45 mínútur að sigla yfir til grísku eyjunnar Rhodos. Rhodosborg er eina fegurstu miðaldaborg heimsins, einstök menningarperla í Eyjahafinu sem á fáa sinn líka. Borgin er friðuð og á heimsminjaskrá UNESCO sem  og sögulegur minnisvarði. Eftir að Rhodos varð höfuðvígi Musterisriddaranna eftir krossferðirnar til landsins helga, byggðu þeir stórfenglegar byggingar í gömlu borginni. Spítala, hallir, kirkjur, hlið, torg, moskur og stræti. Hér er að finna eina fegurstu miðaldagötu heimsins í sinni upprunalegu mynd, Riddarastræti. Það er ótrúleg tilfinnig að ganga um borgina og upplifa söguna, því hér er stemmning í loftinu sem erfitt er að útskýra og maður hreinlega verður að upplifa. Fornleifasafnið í gamla bænum og þjóðlistasafnið eru staðir sem sjálfsagt er að skoða. Innan virkisveggjanna í gamla borgarhlutanum er fjöldi frábærra veitingastaða og verslana í þröngum götum við vinaleg miðaldatorg. Það er frábært að sitja hér og njóta veislu í mat og drykk eða rölta um borgina og upplifa byggingarlist liðinna alda innan um og saman við iðandi mannlífið. Siglt til baka um eftirmiðdaginn. Gisting með öllu inniföldu í Marmaris.

pamukkale13. september
Árla morguns er ekið af stað  til Pamukkale um 2ja tíma akstur. Eftir hádegisverð er haldið í kynnisferð þar sem við skoðum ín fornu borg Laodikya og verslun sem selur handunnar vefnaðarvörur.  Pamukkale er eitt frægast náttúrundur Tyrklands. Oft nefnt Bómullarhöllin. Kalksteinsklettar sem hafa ummyndast og mynda orðið eins konar svalir með rennandi vatni og þykir afar heilsusamlegt að baði sig í heitum uppsprettunum. Við byrjum á því að ganga í geng um rústir hina fornu borgar Hierapolis. Í kjölfarið gefst kostur á að baða sig í náttúrulega heiti laug (The Sacret Pool / hin Heilaga Laug)  þar sem steinar og súlur hinnar fornu borgar ligga á víð og dreif í botninum.  Mikil upplifun er að ganga niður kalksteins hæðina –  og sumstaðar vaða í pollum sem hafa myndast  með ylvolgu notulegu vatni -  þetta gerir maður berfættur.  Gisting  og kvöldverður í Pamukkale.

14. september
Eftir morgunverð er haldið er af stað til  flugvallarins í Bodrum  en þangað er um 3ja tíma akstur.  Flugtak er kl 16:00 og lending í Keflavík kl 19:30

Tripolis Hotel * * * *
Kale Mahallesi Adnan Kahveci Bulvarý No 96 Pamukkale - Denizli  Tyrkland.   Sími: 258 272 3333
 
Glæsilegt hótel um 2 km frá Pamukkale. Á hótelinu eru 155 herbergi. Umhverfis hótelið er fallegur garður stór og góð sundlaug og sólbaðs aðstaða.  Þar er einnig Tyrkneskt bað, gufubað, nuddstofa og nuddpottur.  Herbergin eru loftkæld með gervihnattar sjónvarpi, síma minibar, öryggishólf í herbergi og te og kaffi áhöldum. Hárþurrka á baði .  Hálft fæði innifalið.  Morgunverður og kvöldverður.

Netverð á mann
kr. 246.900  á mann í tvíbýli.  
kr.  269.900 á mann í einbýli.
 
Innifalið: Flug, skattar, gisting á  3* – 4 *  hótelum  í 10 nætur með öllu inniföldu í Gumbet / Bodrum og Marmaris, hálfu fæði í Pamukkale. Kynnisferðir samkvæmt leiðarlýsingu.   Akstur á milli áfangastaða og íslensk fararstjórn miða við lágmarksþátttöku 20 manns.

Ekki innifalið:  Aðrar kynnisferðir en tilgreindar eru í leiðarlýsingu, aðgangur að hinn Heilögu laug í Pamukkale aðgangseyrir að söfnum, siglingar og annað sem ekki er tilgreint að ofan.

Staðfestingargjald er kr. 50.000.   Lágmarksþátttaka er 20 manns.


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur