Töfrar Tyrklands
Bodrum – Ephesus – Kusadasi - Ankara – Kappadocia – Konya – Pamukkale
1.júni – 12. júni
Fararstjóri: Ólafur Gíslason
Glæsileg sérferð þar sem farþegar skoða og fræðast um einstaka staði Tyrklands. Ferðin hefst á 3ja nátta dvöl í Bodrum. Á fjórða degi er ekið í norðurátt til hinnar fornu borgar Efesus. Ekið þaðan til Kusadasi og dvalið þar í 2 nætur. Þá er ekið til Izmir og flogið til höfuðborgarinnar Ankara. Stutt kynnisferð um Ankara áður en haldið verður af stað til Kappadocia í hinu einstaka landsvæði Görene þjóðgarðsins sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Landslagið í þessu litla héraði mið Tyrklands er vindsorfið móberg, sem varð til í eldgosum fyrir mörgum öldum. Það er ævintýri líkast að skoða þetta landsvæði þar sem meðal annars má sjá álfabyggðir, neðanjarðarþorp á mörgum hæðum, klaustur og kirkjur sem víða hafa verið höggvin í mjúkt bergið. Þarna eru líka fjölbreyttar höggmyndir sem náttúran hefur sjálf mótað, keilur, pýramýdar, súlur og stallar. Dvalið í Kappadókía og Konya í fjóra eftiminnilega daga. Þá er ekið að einu frægast náttúrundri Tyrklands Pamukkale. Oft nefnt Bómullarhöllin. Kalksteinsklettar sem hafa ummyndast og mynda orðið eins konar svalir með rennandi vatni og þykir afar heilsusamlegt að baði sig í heitum uppsprettunum. Gisting við Pamukkale í tvær nætur. Frá Pamukkale er ekið til Bodrum flugvallar og flogið til Íslands.
Ferðatilhögun:
1. júni
Flugtak frá Keflavík kl 20:30. Mæting á Keflavíkurflugvelli 2 tímum fyrir brottför. Komutími til Bodrum kl 05:30 að staðartíma að morgni 2. júní. Þriggja tíma munur. Ekið frá flugvelli til Bodrum. Vegalengdin er um 40 km. Klukkutíma akstur. Þar verður gist í 3 nætur.
2. júni
Eftir hádegi er kynnisferð um Bodrum. Ekið niður að höfninnni og gamla bænum. Þá er léttur göngutúr um gamla miðbæinn þar sem við skoðum smábátahöfnina og Bodrum kastalann sem setur svo sterkan svip sinn á bæinn. Þar er nú afar merkilegt sædýarsafn.
Gisting með öllu inniföldu í Bodrum.
3. júni
Frjáls dagur í Bodrum.
Gisting með öllu inniföldu í Bodrum.
4. júni
Ekið til hinnar fornu borgar Ephesus. Þar er að finna eitt best varðveitta fornleifasvæði heims. Saga borgarinnar spannar mörgu þúsund ár en rústir hennar eru frá fyrstu öld. Á heimleið er komið við í húsi Maríu Guðsmóður. Ekið til Kusadasi og dvalið þar í 2 nætur.
Gisting með öllu inniföldu í Kusadasi.
5. júni
Kusadasi bærinn stendur við Eyjahafið. Afar vinsæll ferðamannastaður einkunn þekktur fyrir safír-bláan sjóinn og drifhvítar strendur. Stór og mikil smábátahöfn sem hýsir yfir 600 snekkjur og smábáta setur svip sinn á staðinn. Kynnisferð um bæinn og síðan frjáls tími.
Gisting með öllu inniföldu í Kusadasi.
6. júni
Árla morguns er ekið til Izmir flugvallar. Þaðan er flogið til höfuðborgar Tyrklands Ankara. Stutt kynnisferð um borgina. Þá er ekið í suðurátt og ekið til Kappadókía. Um 230 km rúmlega 3ja tíma akstur. Dvalið í 3 nætur.
Gisting og kvöldverður í Kappadókía.
6
. – 9. júni
Dvalið í Kappadókía þar sem við skoðum þetta einstaka landsvæði Görene þjóðgarðsins. Landslagið í þessu litla héraði Tyrklands, er vindsorfið móberg, sem varð til í eldgosum fyrri á öldum. Þarna má sjá fjölbreyttar höggmyndir náttúrunnar, keilur, pýramýdar, súlur, strýtulagaða strompa, stalla, álfabyggðir og neðanjarðarþorp. Við skoðum til dæmis neðanjarðarþorpið Kaymakli sem höggvið í mjúkt móbergið og er ævintýri líkast. Þá skoðum við fagurskreyttar bergkirkjur og klaustur margar prýddar fögrum veggmyndum, sem varðveist hafa þar sem geislar sólarinnar hefur ekki notið við. Við heimsækjum Avanos sem hefur verið miðstöð keramiks vinnslu staðarins síðan fyrir Krist. Skoðum vinnustofur og kynnumst vinnubrögðum þeirra. Þá sjáum við líka einstakt útileikhús þjóðgarðsins en þar sjáum við gott dæmi um list á býsantium tímanum og njótum síðan stórbrotins útsýnis yfir Kappadókina frá Uchsar bergkastalanum. Þá röltum við í gegn um yfirgefin þorp og skoðum hýbýli griphús og vírækt staðarins. Víst er að þetta landsvæði er þeim sem sækja það heimsækja afar minnisstætt enda einstakur og afar forvitnilegur staður. Gisting og kvöldverður í Kappadókía.
9. júni
Við höldum áfram að skoða þetta einstaka svæði. Hádegisverður á völdum veitingastað við ánna. Þá er komið við í þorpinu Selime þar sem klettarnir og höggmyndanir minna óneitanlega á landslag í Star Wars kvikmyndunum. Ekið til næsta áfangastaðar sem er Konya og gist þar í 1.nótt.
Gisting og kvöldverður í Konya.
10. júni
Í Konya skoðum við Alaeddin Moskuna og Melvana safnið. Eftir hádegisverð er farið á ekta Mevlevi skemmtum með tilheyrandi tónlist og dans sem er svo einkennandi fyrir Konya og hef verið svo í um 800 ár. Um eftirmiðdaginn er ekið til Pamukkale og komið þangað um kvöldmatarleitið.
Gisting og kvöldverður í Pamukkale.
11. júni
Pamukkale er eitt frægasta náttúrundur Tyrklands. Kalksteinsklettar sem hafa ummyndast og mynda eins konar svalir eða stalla með rennandi vatni. Þarna eru heitar uppstprettur og þykir vatnið afar heilsusamlegt til baða. Eftir morgunverð er kynnisferð um Pamukkale. Við byrjum á því að ganga í geng um rústir hina fornu borgar Hierapolis og að leikhúsi staðarins en þaðan er gott yfirsýn yfir svæðið. Þá sjáum við “ The Sacret Pool” hina Heilögu laug sem er náttúrulega heit laug þar sem steinar og súlur hinnar fornu borgar ligga á víð og dreif í botninum. Þá göngum við að kalksteinshæðinni og virðum fyrir okkur þetta fallega náttúruundur. Það er nauðsynlegt að taka nokkrar myndir og dýfa tánum í eina heita laug eða svo eða ganga berfættur niður hlíðina – sem er alls ekki gott fyrir sárfætta. Gisting og kvöldverður í Pamukkale.
12. júni
Eftir morgunverð er haldið er af stað til flugvallarins í Bodrum en þangað er um 3ja tíma akstur. Flugtak er kl 16:00 og lending í Keflavík kl 19:30.
Netverð á mann
kr. 254.700 á mann í tvíbýli.
kr. 284.500 á mann í einbýli.
Innifalið: Flug, skattar, gisting á 3+ - 4* hótelum í 11 nætur með öllu inniföldu í Bodrum og Kusadashi. Með hálfu fæði á öðrum gististöðum. Flug frá Bodrum til Ankara. Kynnisferðir samkvæmt leiðarlýsingu. Akstur á milli áfangastaða og íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.
Ekki innifalið: Aðrar kynnisferðir en tilgreindar eru í leiðarlýsingu, aðgangur að hinn Heilögu laug í Pamukkale, aðgangseyrir að söfnum, siglingar og annað sem ekki er tilgreint að ofan.
Staðfestingargjald er kr. 50.000. Lágmarksþátttaka er 20 manns.