Töfrar Andalúsíu og sólskin á Torremolinos
15. - 24. maí
Sevilla - Cordoba - Torremolinos
Fararstjóri í Sevilla: Erla Erlendsdóttir
Fararstjóri í Torremolinos : Hulda Jósefsdóttir
Andalúsía er syðsta hérað Spánar eitt fallegasta og frægasta hérað landsins. Allt frá hrikalegum fjallvegum með stórkostlegu útsýni yfir í gróskumikla vínviði og ógrynni ólífutrjáa, til sögufrægra kastala og mikilfenglegra bygginga sem minnir á þann tíma er mára ríktu á Spáni. Í héraðinu er mikil vínrækt og er Andalúsía einkum frægust fyrir framleiðslu sína á sérrí og sætum desert vínum. Mataræði er jafn fjölbreytilegt og landslagið í Andalúsíu og hér er hjarta tapasréttanna. Flogið er til Sevilla flugvallar en heimferð er frá Malaga flugvelli. Gist í Sevilla í 4 nætur. Miðborg Sevilla er einstaklega fögur með þröngum skuggsælum göngugötum, fallegum lágreistum húsum, líflegum gosbrunnum og dásamlegum torgum, kaffihúsum og litrítu mannlífi. Hér er sögusvið óperunnar um Carmen og í Sevilla má sjá bestu flamenkódansarar Spánar sýna list sína. Á fimmta degi er ekið til hinnar sögufrægu borgar Córdoba. Á tímum máraveldisins var Córdoba höfuðborg héraðsins og var lengi vel talin glæsilegri en nokkur önnur borg þess tíma og menningarstarfsemin öll hin blómlegasta. Kynnisferð um miðborgina. Þá er haldið í suðurátt til baðstrandarbæjarins Torremolinos þar sem dvalið verður í 5 nætur á góðu hóteli í miðbænum með öllu inniföldu.
15. maí
Flogið með Icelandair til Jerez flugvallar á suður Spáni. Flugtak kl 8:00. Lending í Jerez kl 14:20. Frá Jerez til Sevilla eru 80 km eða tæplega 2ja tíma akstur. Gisting á góðu 3* hóteli í miðborg Sevilla.
16. maí
Eftir morgunverð er haldið í hálfsdags kynnisferð um borgina. Að kynnisferð lokinni er tilvalið að njóta þess að skoða þessa fögru borg á eigin vegum. Kvöldverður á hótelinu.
17. maí
Frjáls dagur í Seville. Kvöldverður á hóteli.
18. maí
Frjáls dagur í Seville.
19. maí
Eftir morgunverð er haldið til Torremolinos með viðkomu í borginni Córdoba. Um 120 km akstur. Í Córdoba skoðum við Moskuna og Gyðingarhverf borgarinna. Fyrr á tímum var Cordoba höfuðborg héraðsins og talin glæsilegri en nokkur önnur borg þessa tíma og menningarstarfsemi öll hin blómlegasta. Hér býr fólk af ólíkum þjóðernum og trúarbrögðum í sátt og samlyndi. Frá Cordoba er ekið í suðurátt til Torremolinos um 140 km. Komið til Torremolinos um eftirmiðdaginn og dvalið þar í 5 nætur.
19. maí - 24. maí
Gisting á Hótel Roc Flamingo * * *
Roc Flamingo er gott og huggulegt hótel rétt við miðbæ Torremolinos. Við hótelið er sundlaug, sundlaugar-bar og sólbaðsaðstaða. Á herbergjum er loftkæling, sími, öryggishólf, gervihnattasjónvarp, baðherbergi og svalir eða verönd. Rétt við hótelið er hringiða Torremolinos með ótrúlegu úrvali verslana, veitingastaða, næturklúbba og bara. Skemmtidagskrá í boði fyrir hótelgesti. Frá hótelinu er aðeins um 15 mín. gangur á ströndina. Á hótelinu er "allt innifalið" sem felur í sér morgun, hádegis- og kvöldverð auk áfengra og óáfengra innlendra drykkja, s.s. bjór, gos, vatn, léttvín og sterkt vín. Janframt snarl o.fl. á milli mála.
24. maí
Brottfarardagur. Flogið er til Keflavíkur seinni part dags og lent á Keflavíkurflugvelli um kvöldið.
Netverð á mann
kr. 179.900 á mann í tvíbýli.
kr. 222.900 á mann í einbýli.
Innifalið: Flug, skattar, gisting á 3* hótelum í 9 nætur með hálfu fæði í Sevilla, og öllu inniföldu í Torremolinos. Kynnisferðir um Sevilla og Córdoba. Akstur á milli áfangastaða og íslensk fararstjórn.
Ekki innifalið: Kvöldverður 18 maí. Aðrar kynnisferðir en tilgreindar eru í ferðalýsingu. Aðgangseyrir að söfnum og annað sem ekki er tilgreint að ofan.
Staðfestingargjald er kr.25.000.