Portoroz í Slóveníu
Portoroz er þekktasti og vinsælasti baðstrandabærinn í hinu litla, friðsæla og fagra landi Slóveníu. Bærinn liggur í skjóli skógi vaxinna hlíða við blátt Adríahafið og þar snýst flest um ferðaþjónustu og heilsurækt og öll aðstaða er til fyrirmyndar. Ströndin er blanda af steinvölu-, sand- og tilbúinni strönd við tæran sjóinn og við strandgötuna er fjöldi veitingastaða og bara þar sem ljúf danstónlist hljómar víða fram eftir kvöldi. Dvalið er á Hótel Slovenija sem er gott 4 stjörnu hóteli á besta stað við aðalgötuna í Portoroz. Fallegt hótel með mjög góðri þjónustu og frábærri sameiginlegri aðstöðu. Gisting í 7 nætur. Í boði verða spennandi kynnisferðir og siglingar, m.a. til hins einstaklega fallega smábæjar Piran, til höfuðborgarinnar Lubljana, Feneyja, og Bled vatnsins sem er einstök náttúruperla.
30. júni
Flogið til Trieste á Ítalíu . Ekið yfir landamæri Slóveníu til Portoroz (um 1 klst.) og gist á LifeClass hótelinu Slovenija í 7 nætur, en það er sérlega gott hótel með góðri sameiginlegri aðstöðu, þar á meðal sundlaug og heilsurækt. Morgun- og kvöldverður á hóteli allan tímann.
1. júlí
Í boði er hálfs dags kynnisferð til hins gamla og einstaklega fallega nágrannabæjar Piran. Siglt er frá Portoroz og það er einstaklega gaman að virða fyrir sér landið frá sjó og njóta lífsins á leiðinni í þessari stuttu siglingu.
2. júlí
Í boði er dagsferð til hins fagra fjallavatns Bled, sem margir telja einn fegursta stað Alpanna. Ekið að morgni í um 2 klst. og dvalið við Bled vatnið fram eftir degi. Stutt kynnisferð um bæinn og síðan má t.d. fara í gönguferð meðfram vatninu, fara í siglingu út í Bled eyju eða bara dóla sér í bænum og fá sér hressingu í einum af mörgum veitingastöðunum, t.d. frægustu köku staðarins, "Bled-snittu". Ekið til baka síðdegis.
3. júlí
Frjáls dagur í Portoroz.
4. júlí
Í boði er kynnisferð til höfuðborgar Slóveníu, Ljubljana. Ekið af stað að morgni og eftir um 1 1/2 klst. er komið þangað. Gönguferð um miðborgina þar sem sem við kynnumst því helsta í þessari vinalegu borg. Frjáls tími til að skoða sig betur um eða til að versla áður en haldið er til baka til Portoroz.
5. júlí
Í boði er kynnisferð til Feneyja, hinnar einu og sönnu drottningar hafsins. Lagt af stað snemma morguns og eftir um 2 1/2 klst. akstur er komið þangað og við tekur um 30 mín sigling að Markúsartorgi. Í stuttri kynnisferð um miðborgina koma Markúsarkirkjan, Hertogahöllin, síki, gondólar, Feneyjakristall, ótrúleg saga, byggingar og listaverk við sögu. Frjáls tími áður en haldið er til baka til Portoroz síðdegis.
6. júlí
Frjáls dagur í Portoroz. Þeir sem óska geta bókað hálfs dags ferð til hinna heimsfrægu hella í Postojna. Nánar hjá fararstjóra á staðnum.
7. júlí
Flogið til Íslands frá Trieste flugvelli um eftirmiðdaginn. Flugtímar liggja ekki fyrir eins og er.
Dagskrá þessi er birt með fyrirvara og áskilja Heimsferðir sér rétt til að breyta henni ef á þarf að halda, en ávallt með heill og þægindi farþega í fyrirrúmi.
Kynnisferðir þarf að bóka á Íslandi fyrir brottför. Lágmarksþátttaka í hverri ferð er 20 manns.
Verð á mann
Kr. 164.900 á mann í tvíbýli
Kr. 182.900 á mann í einbýli
Innifalið:
Flug til og frá Trieste, skattar, gisting á 4* hóteli ( Hotel Slovenija ) í 7 nætur. Morgunverður og kvöldverður. Akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn.
Ekki innifalið:
Kynnisferðir, fæði annað en tilgreint er, siglingar og aðgangseyrir. Forfallagjald.
Staðfestingargjald er kr.50.000. Lágmarksþátttaka er 20 manns, einnig í kynnisferðum.