Portoroz í Slóveníu - snilldin ein!
Staður sem svo margir Íslendingar þekkja.
30. júní - 7. júlí
Ferð sem sameinar menningu, náttúrufegurð og afslöppun
Portoroz er þekktasti og vinsælasti baðstrandabærinn í hinu litla og friðsæla landi Slóveníu. Bærinn liggur í skjóli skógi vaxinna hlíða við blátt Adríahafið og þar snýst flest um ferðaþjónustu og heilsurækt og öll aðstaða er til fyrirmyndar. Ströndin er blanda af steinvölu og sand strönd við tæran sjóinn og á strandgötunni er fjöldi veitingastaða og bara þar sem ljúf danstónlist hljómar víða fram eftir kvöldi. Dvalið er á hótel Slovenija sem er mjög gott 4ra stjörnu hótel með mjög góðri þjónustu og frábærri aðstöðu. Í boði verða kynnisferðir t.d. til hins fallega smábæjar Piran og höfuðborgarinnar Ljubljana og Feneyja, fyrir þá sem þess kjósa.
Kynntu þér glæsilega ferðatilhögun hérna!
Kr. 164.900 á mann í tvíbýli. Aukagjald fyrir einbýli kr. 18.000. Netverð á mann með sköttum og hálfu fæði.