Netklúbbur


Perlur Slóveníu og Króatíu


Perlur Slóveníu og Króatíu

Í þessari vikuferð kynnumst við völdum perlum Slóveníu og Króatíu. Slóvenía er  aðeins um fimmtungur Íslands, en hefur allt; fjöll, vötn, strönd, skóga, heilsulindir, sögulegar borgir og minjar svo eithvað sé nefnt.  Króatía er einn eftirsóttasti áfangastaður í Evrópu, enda er hér að finna í hjarta Evrópu stórkostlega náttúruperlu með ótrúlega náttúrufegurð, frábærar strendur og tæran sjó, heillandi menningu og glæsilega gististaði. Mannlífið er skemmtileg blanda enda ríkir hér menning síðustu árþúsunda, sem Grikkir, Rómverjar, Slavar, Frakkar, Ítalir og Austurríkismenn hafa sett mark sitt á.  Þeir sem koma til Króatíu eru sammála um að hér sé að finna Evrópu eins og hún var. Flogið til og frá Trieste á Ítalíu.  Gist í góðum 4* hótelum.  Einstaklega  þægileg og spennandi ferð um heillandi svæði.

 

30. júni  

Flogið til Trieste á Ítlaíu. Ekið um fagurt landslag Ítalíu og Slóveníu og komið til fjallaperlunnar Bled.   Bled  er undurfagur smábær og þekktur ferðamannastaður við samnefnt vatn sem kúrir í faðmi hárra fjalla. Góð aðstaða til alls kyns dægradvalar og heilsuræktar og fallegar gönguleiðir í kring.  Kvöldverður og gisting í Bled   

 

1. júlí

Eftir morgunverð er farið í kynnisferð/gönguferð um Bled. Gengið verður um bæinn og fararstjóri sýnir helstu staði og kennileiti. Siglt út í Bled-eyju á “pletna” bátum sem eru einkennandi fyrir staðinn og farið upp í kastalann. Síðdegis er boðið upp á ferð að Bohinj vatni, sem er í um 30 mín akstursfjarlægð frá Bled. Þar fáum við en meiri sýn á hina fögru Júlíönsku Alpa og fegurðin og stemmningin er einstök hvert sem litið er. Kvöldverður og gisting í Bled

 

2. júlí   

Eftir morgunverð er ekið til Ljubljana, höfuðborgar Slóveníu.  Borgin er einstaklega ljúf og notaleg, með lífleg torg, falleg hús  og fjöldann allan af veitinga- og kaffihúsum, listasmiðjum og verslunum. Athyglisverð borg  með fjölda gamalla minja, notaleg blanda af smáborg og stöðugt vaxandi heimsborg. Kynnisferð um bæinn og frjáls tími til að versla eða skoða sig betur um. Kvöldverður og gisting í Ljubljana

 

 

3. júlí. 

Í dag höldum við til Zagreb sem er höfuðborg Króatíu. Á leiðinni þangað er stoppað í Otocec þar sem við skoðum einstakalega fallegan kastala og umhverfi hans. Kynnisferð um Zagreb sem stendur við ána Sava. Ekið um miðborgina þar sem við kynnumst sögunni og helstu byggingum og kennileitum. Göngutúr um miðbæinn og frjáls tími. Kvöldverður og gisting í Zagreb.

 

4. júlí

Í dag er ekið til strandar með viðkomu í Plitvice þjóðgarðinum.  Þegar komið er til Plitvice er farið í göngutúr um þjóðgarðinn þar sem 16 stór og smá vötn tengjast saman með 92 fossum af ýmsum stærðum og gerðum. Þetta einstaka náttúruundur hefur verið sett á minjalista UNESCO 1979.  Um eftirmiðdaginn er ekið til Opatija, sem er fallegur baðstrandarbær í Króatíu sem stendur við stönd Adríahafsins á austurströnd Ístríuskagans. Gisting á góður 4* hóteli skammt frá ströndinni í 3 nætur. Kvöldverður á hóteli. 

 

5. júlí

Í dag verður haldið í skemmtilega dagsferð um helstu perlur Ístríuskagans og komið víða við m.a. í borginni Pula og miðaldarbænum Pazin þar sem sjá má m.a. einstaklega vel varið miðaldarvirki.  Það er mikil náttúru fegurð á Ístríuskaganum sem gleður augað,  vínviður, ólífutré og grænir dalir.  Strandlengjan er  vogskorin með litlum eyjum og skerjum í flæðamálinu.  Í lok ferðar verður komið við hjá fjölskyldu sem býður  gestum uppá veitingar að hætti heimamanna.

 

6. júlí  

Frjáls dagur í Opatija. Fyrir þá sem kjósa að halda áfram að skoða sig um má benda á ferð til Krk eyjunnar sem er skammt undan ströndinni.

 

7. júlí

Ekið út á Ronchi flugvöll við Trieste þaðan sem flogði er til Keflavíkur.

 

Dagskrá þessi er birt með fyrirvara og áskilja Heimsferðir sér rétt til að breyta henni ef á þarf að halda, en ávallt með heill og þægindi farþega í fyrirrúmi.

 Verð á mann 

Kr. 229.880  á mann í tvíbýli

Kr.  257.880 á mann í einbýli

 

Innifalið:

Flug til og frá Trieste, skattar, gisting á 4* hótelum í 7 nætur. Morgun- og kvöldverður. Kynnisferðir samkvæmt ofangreindri dagskrá. Akstur til og frá flugvelli og á milli áfangastaða. Íslensk fararstjórn. 

 

Ekki innifalið:

Aðrar kynnisferðir en þær sem eru samkvæmt dagskránni, siglingar og aðgangseyrir á aðra staði  en þá er tilgreindir  eru í leiðarlýsingu.  Forfallagjald.

 

Staðfestingargjald er kr. 30.000.  Lágmarksþátttaka er 20 manns.


Smelltu hér til að bóka þessa spennandi ferð!!


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur