Netklúbbur


Náttúruperla í Austurríki

8394Íslendingahótelið í St. Michael í Lungau

25. ágúst - 1. september  

Smábærinn St. Michael í Lungau héraði í Austurríki er mikil náttúruperla. Bærinn er vel þekktur meðal íslenskra skíðamanna sem þar hafa dvalið og notið lífsins þar að vetri til. Að sumarlagi mætti líkja bænum við himnaríki útivistarmannsins, því möguleikarnir eru jafn fjölbreyttir og náttúruflóran í fjallshlíðunum – útreiðartúrar, sundlaugar, fjallarússíbani, svifdrekaflug, tennis, náttúrustígar og í stuttu göngufæri frá hótelinu er fallegur 18 holu golfvöllur. Fjöllin í kring eru tilvalin fyrir léttar gönguferðir og njóta fjalladýrðarinnar, en ótalmargir möguleikar eru einnig fyrir hjólreiðafólk og annað útivistarfólk. Hér eru merktar gönguleiðir innan um skógi vaxnar fjallshlíðarnar, upp á fjallstinda, framhjá fornum köstulum og öðrum menningarleifum. Vinsælt er taka kláf upp á fjall og ganga niður í dalinn eftir vel merktum göngustígum. Þá er um að gera að staldra við á fjallaveitingastöðunum og fá sér hressingu og ekta sveitamat. Dvalið  á hinu stórgóða íslendingahóteli Hotel Speiereck þar sem einstaklingar jafnt sem fjölskyldur njóta vinalegrar þjónustu hótelhaldara í fallegu og afslöppuðu andrúmslofti.  Staðsetning Lungau er afar miðsvæði til að mynda er einungis um 100 km til Salzburgar fæðingarbær Mozarts.  Flogið er með Icelandair til Munchen og ekið til Lungau. Tæplega 3ja tíma akstur. Í þessari vikuferð verður boðið uppá stuttar kynnisferðir og gönguferðir um St. Michael og næsta um nágrenni.

Skihotel Speiereck * * *
St. Martiner Strasse 99 * 5582 Sankt Michael im Lungau Austurríki sími: +43 6477 69932
Á hótelinu er setustofa, bókasafn,líkamsræktaraðstaða, garður og aðgengi að þráðlausu interneti. 200 metrar niður í miðbæ.  Öll herbergi eru með baði/sturtu, sjónvarpi og hárþurrku.

Ferðatilhögun:

25. ágúst
Flug með Icelandair til München kl 7:20 að morgni. Lendin í München  kl 13:05 að staðartíma. Ekið til St. Michael í Lungau, afar fallega fjallaleið, um 250 km. Þar verður dvalið í faðmi fagurra fjalla og einstakrar náttúrfegurðar í 7 nætur á góðu og heimilislegu 3* fjallahóteli sem er rekið af íslenskri fjölskyldu.

26. ágúst
Draumur margra er að fara í gönguferð í Ölpunum og nú gæti sá draumur ræst. Í boði er gönguferð um nágrennið og fjöllin. Í hvaða formi sem viðkomandi er, það má finna gönguleið við allra hæfi, og "hjálpartæki" eins og strætó, fjallalyftur eða reiðhjól eru einnig til staðar ef á þarf að halda. Einnig má minna á gullfallegan golfvöll í nágrenninu. Sem sagt: útivistardagur!

27. ágúst
Boðið upp á kynnisferð um alpaveröldina. Ekinn gullfallegur fjallahringur, m.a. að hæsta fjalli Austurríkis, Grossglockner (3798 m), og þar verður stoppað  í smá stund í bænum Heiligenblut. Síðan ekið áfram til Zell am See, sem er afar fallegur og þekktur skíða- og ferðamannabær við samnefnt vatn. Staldrað við þar áður en hringnum er lokað í St. Michael undir kvöld.

28. ágúst
Við njótum lífsins í Ölpunum, frjáls dagur til að gera hvað sem hugurinn girnist.

29. ágúst
Dagsferð til Salzburg fæðingarborgar Mozarts. Afar glæsileg borg með einstaklega vel varðveittum byggingum í barokkstíl. Sérstaklega er gaman að rölta um gamla bæinn eða Altstadt, en hann er skráður á heimsminjaskrá UNESCO. 

30. ágúst
Við njótum lífsins í Ölpunum, frjáls dagur til að gera hvað sem hugurinn girnist.

31. ágúst
Skemmtileg hálfsdags ferð til Katschberg. Ekið með strætisvagni frá Lungau til Katschberg. Þá er farið með hestvögnum að  veitingahúsi í fjöllunum sem býður uppá ótrúlegt útsýni yfir nærliggjandi sveitir.  Þar er dvalið um stund og síðan er gengið til baka til Katschberg – eða farið sömu leið til baka í hestvögnum fyrir þá sem vilja síður ganga. Strætisvagninn tekinn aftur til Lunagu.

1. september
Kveðjustund. Eftir morgunverð er stefnan tekin á Munchen en þaðan verður flogið til Íslands.
Flugtak kl 14:05 og lending í Keflavík kl 16:00. 

Netverð á mann
kr. 152.800 á mann í tvíbýli.  
kr. 164.400 á mann í einbýli.
 
Innifalið: Flug, skattar, gisting á 3* hóteli í 7 nætur með hálfu fæði.  Akstur á milli áfangastaða og íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.
Ekki innifalið: Kynnisferðir, aðgangseyrir að söfnum, tónleikum og annað sem ekki er tilgreint að ofan.


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur